Er ég efni í næsta landbúnaðarráðherra?
Stórskemmtilegum flokksráðsfundi VG lauk um hádegisbil í dag. Ég tók þátt í umræðuhópi um landbúnaðarmál. Það var bráðskemmtilegt og sýn miðbæjarrottunnar á málin mæltist bara ágætlega fyrir…nema allir hinir í hópnum hafi bara verið svona óstjórnlega kurteisir.
Ég efast þó um að landbúnaðarráðuneytið verði það ráðuneyti sem ég muni í náinni framtíð legja mesta áherslu á að komast til áhrifa í. En maður veit aldrei.
Til dæmis man ég ekki betur en að ég hafi mætt í sauðburð til ömmu og Valda hérna um vorið og bara verið ansi liðtæk lambaljósmóðir. Næsta skref er því kannski að heimsækja kúabónda nokkurn á Tjörnesinu og læra á mjaltavélarnar.
January 20th, 2007 at 7:11 pm
Ég efast nú ekki um að þú yrðir góður landbúnaðarráðherra en ég er samt viss um að kröftum þínum væri betur varið í öðrum ráðuneytum - vona bara að þeir fái að nýtast e-n tíman:)