Í tilefni Bóndadagsins…

…ákvað ég að sýna á mér húsmóðurlegu hliðina í kvöld. Hóf viðgerð á veski og heklaði í ullarbol af Ólínu. Guðni Már Henningsson á næturvakt rásar 2 hélt mér félagsskap. Bóndinn sat hinsvegar á Flokksráðsfundi VG.

Það er svo bara aldrei að vita nema ég hafi heklunálina með mér á fund í fyrramálið.

One Response to “Í tilefni Bóndadagsins…”

  1. Kári Says:

    Og ég sem hélt að bóndadagurinn væri tileinkaður bændum. Er ekki málið að skreppa í Húsdýragarðinn frekar en að hygla hefðbundnum kynhlutverkum?

Leave a Reply