Gubb
Ólína er sofnuð. Vonandi sefur hún betur í nótt en hún gerði í fyrrinótt. í gærkvöldi var hún voða þæg og góð og sofnaði bara skikkanlega snemma. Um ellefuleytið heyrðist hinsvegar hálfgert hræðsluöskur innan úr svefnherbergi. Þegar ég mætti á staðinn blasti við mér ófögur sjón en Ólínan sat í miðju hjónarúminu (sem e.t.v. væri réttara að kalla fjölskyldurúm) í súrum ælupolli. Og hún var greinilega skíthrædd við það sem hafði gerst - enda bara einu sinni áður gubbað eftir að föst fæða fór aðvera uppistaðan í mataræði hennar.
Það tók þónokkurn tíma að róa hana niður. Hún gubbaði svo aftur seinna um nóttina en þá vorum við betur undirbúin, búin að klæða rúmið handklæðum og með æludall við höndina. Í dag hefur hún bara verið nokkuð spræk en ekki borðað mikið.
* * *
Stefán er frekar sætur þessa dagana þar sem hann situr niðursokkinn í bréf langafa síns. Ég sé það fyrir mér hvernig börnin eða barnabörnin hans Helga Gnýs komast í bréfasafn frú Jóhönnu í framtíðinni og skemmta sér við að lesa bréf til hennar frá mér. Ég veit þó ekki hvort þeim muni finnast það hjartnæmt að lesa um aðdáum mína á Guns n’ Roses og Skid Row en mig minnir að bréfin hafi fjallað um fátt annað.
January 14th, 2007 at 10:45 am
:D ekki gleyma “Vissiru að það er búið að reka Vince söngvarann í Mötley Crue” Ég myndi ekki einu sinni geta borið kennsl á lag með M.C. þó ég ætti lífið að leysa.
January 15th, 2007 at 11:02 am
http://www.flickr.com/photos/vigdishlif/355919081/
héddna er mynd af barninu ef þig langar að sýna einhverjum í netheimum
January 17th, 2007 at 12:26 pm
Ég myndi gjarnan vilja sjá þessi bréf…
January 18th, 2007 at 10:10 pm
Ég heimta blogg!