Archive for January, 2007

Framfarir

Wednesday, January 31st, 2007

Fyrr í kvöld mætti ég á fund í félagasamtökum. Ég tók engin verkefni að mér né heldur embætti. þó svo að hvort tveggja hafi verið í boði. Það kallar maður framfarir. Nánar um þessi félagasamtök síðar.

* * *

Ég er enn að hlæja að því hvaða Stef Jón Knútur hafi átt að hringja í. Það segir líklega mest um dapurlegt líf mitt nú á þessum síðustu og verstu dögum kvefpestar.

Enginn leikskóli á morgun vegna kvefs

Monday, January 29th, 2007

Mánudagskvöld verða sjónvarpskvöld næstu vikurnar. Lost er semsagt byrjað aftur. Gaman gaman. Svo er meira að segja hægt að horfa á CSI strax á eftir, svona ef maður vill vera algjör sófakartafla. Reyndar er ég ekki neitt voðalega hrifin af þeirri nýju stefnu sem þessi þáttaröð er að taka.
* * *

Skemmtileg, en reyndar ekki alveg glæný, grein eftir Ármann Jakobsson á Kistunni. Jóhanna, ég er viss um að þú hefðir gaman af að lesa hana.

* * *

Ég nenni eiginlega ekki að hafa skoðun á brotthvarfi Margrétar Sverrisdóttur úr Frjálslynda flokknum. Það er heldur ekki eins og ég sé að fara að kjósa þann flokk í vor, hverjir sem annars verða innan flokks og hverjir sem verða utan. Hinsvegar verður spennandi að sjá hvaða málefnaáherslur verða settar á oddinn hjá flokknum núna þegar karlfauskarnir eru lausir við konuna.

Eða reyndar er það ekkert voðalega spennandi.
* * *
Fjölskyldukvefið er orðið krónísk. Mér er ekki skemmt. Held að barnið hafi síðast náð heilli viku í leikskólanum einhverntíma í Nóvember. Það var á fokkíng síðasta ári.

Úff

Sunday, January 28th, 2007

Stundum á maður bara skilið að fá rauðvínsglas!

Snillingur

Sunday, January 28th, 2007

Það var gaman að sjá viðtal við snillinginn og fyrrum bekkjabróður minn, Stefán Jörgen, í Mogganum í dag. Ég man að strax í grunnskóla var hann rosalega flinkur að gera allskyns brúður og hafði yfirgengilegan áhuga á hryllingsmyndum - en þær notaði hann einmitt til að fá hugmyndirnar að brúðunum.

* * *

Stefán minn og Ólína eru bæði fremur tuskuleg til heilsunnar. Hor í nös og hósti eru að gera líf fjölskyldunnar leiðinlegra en það annars þyrfti að vera. Annars heyrist mér hún vera að gúffa í sig eftirrétt sem tengdapabbi var að útbúa. Vonandi er ekki alveg búið að eta mig út á gaddinn.

Heimsmynd að hruni komin

Saturday, January 27th, 2007

Í gær keyptum við okkur nýjan klósettbursta í Bónus - sem er nú svosem varla í frásögur færandi - nema hvað ég valdi einmitt þennan bursta vegna þess að á honum var límmiði sem á stóð Blindravinnustofan.

Þegar heim var komið tók ég eftir því að um skaftið á burstanum sjálfum er smá pappi og á honum stendur made in germany. Blindravinnustofu límmiðinn er hinsvegar á glæru plasti sem heldur saman klósettburstanum sjálfum og ílátinu undir hann.

Ég er bara ekki alveg að ná hlutverki Bilndravinnustofunnar í gerð þessa klósettbursta.  Er það kannski bara að setja óþarfa plastumbúðir utanum annars tilbúinn bursta? Eða er það kannski bara að líma límmiða á vörur sem einhver annar er búinn að búa til?

Ég var alin upp við að maður kaupir vörur merktar blindravinnustofunni. Núna finnst mér því pínulítið eins og stoðunum hafi verið kippt undan heimsmynd minni.

Fer nafnið þitt í mótmælagöngu á morgun?

Friday, January 26th, 2007

Þetta er búinn að vera talsvert afkastamikill morgun. Verst bara að ég er ekki búin aðafkasta neinu því sem ég hefði átt að vera að afkasta. Er hinsvegar búin að vera dugleg að lesa ýmsa pappíra sem skipta mig takmörkuðu máli, taka svolítið til og klára að gera við veskið sem ég hóf viðgerð á um daginn.

Veskjaviðgerðina er ég að hugsa um að líta á sem svolítinn skerf af minni hálfu til umhverfismála, því nú þarf ég hvorki að henda þessu veski né fjárfesta í nýju. Það er auðvitað hið besta mál.

* * *

Hrönn og Svenni eru búin að eignast lítinn dreng. Ég hlakka mikið til að kynnast kappanum. Þetta er mikið myndar barn - enda á hann myndar foreldra.

* * *

Matur í Friðarhúsi í kvöld. Mættu eða vertu mús.

Svo er heldur ekki úr vegi að láta nafnið sitt taka þátt í mótmælagöngu gegn stríðinu í Írak á morgun. Hér skráir maður sig og hér eru svolitlar upplýsingar um gönguna á íslensku.

Engir skunkalegir gestir á þessu heimili

Sunday, January 21st, 2007

Í dag fengum við góða gesti. Bryndís og Jói komu nefnilega og heimsóttu okkur. Ólínu leyst strax vel á Bryndísi og var komin upp í fangið á henni með bók fyrr en varði.

* * *

Skunkur

* * *

Von er á karli föður mínum í bæinn í kvöld. Það verður gaman að hýsa hann í nokkra daga. Verst er bara hvað hann stoppar stutt í þetta skipti.

Er ég efni í næsta landbúnaðarráðherra?

Saturday, January 20th, 2007

Stórskemmtilegum flokksráðsfundi VG lauk um hádegisbil í dag. Ég tók þátt í umræðuhópi um landbúnaðarmál. Það var bráðskemmtilegt og sýn miðbæjarrottunnar á málin mæltist bara ágætlega fyrir…nema allir hinir í hópnum hafi bara verið svona óstjórnlega kurteisir.

Ég efast þó um að landbúnaðarráðuneytið verði það ráðuneyti sem ég muni í náinni framtíð legja mesta áherslu á að komast til áhrifa í. En maður veit aldrei.

Til dæmis man ég ekki betur en að ég hafi mætt í sauðburð til ömmu og Valda hérna um vorið og bara verið ansi liðtæk lambaljósmóðir. Næsta skref er því kannski að heimsækja kúabónda nokkurn á Tjörnesinu og læra á mjaltavélarnar.

Í tilefni Bóndadagsins…

Friday, January 19th, 2007

…ákvað ég að sýna á mér húsmóðurlegu hliðina í kvöld. Hóf viðgerð á veski og heklaði í ullarbol af Ólínu. Guðni Már Henningsson á næturvakt rásar 2 hélt mér félagsskap. Bóndinn sat hinsvegar á Flokksráðsfundi VG.

Það er svo bara aldrei að vita nema ég hafi heklunálina með mér á fund í fyrramálið.

Gubb

Saturday, January 13th, 2007

Ólína er sofnuð. Vonandi sefur hún betur í nótt en hún gerði í fyrrinótt. í gærkvöldi var hún voða þæg og góð og sofnaði bara skikkanlega snemma. Um ellefuleytið heyrðist hinsvegar hálfgert hræðsluöskur innan úr svefnherbergi. Þegar ég mætti á staðinn blasti við mér ófögur sjón en Ólínan sat í miðju hjónarúminu (sem e.t.v. væri réttara að kalla fjölskyldurúm) í súrum ælupolli. Og hún var greinilega skíthrædd við það sem hafði gerst - enda bara einu sinni áður gubbað eftir að föst fæða fór aðvera uppistaðan í mataræði hennar.

Það tók þónokkurn tíma að róa hana niður. Hún gubbaði svo aftur seinna um nóttina en þá vorum við betur undirbúin, búin að klæða rúmið handklæðum og með æludall við höndina. Í dag hefur hún bara verið nokkuð spræk en ekki borðað mikið.

* * *

Stefán er frekar sætur þessa dagana þar sem hann situr niðursokkinn í bréf langafa síns. Ég sé það fyrir mér hvernig börnin eða barnabörnin hans Helga Gnýs komast í bréfasafn frú Jóhönnu í framtíðinni og skemmta sér við að lesa bréf til hennar frá mér. Ég veit þó ekki hvort þeim muni finnast það hjartnæmt að lesa um aðdáum mína á Guns n’ Roses og Skid Row en mig minnir að bréfin hafi fjallað um fátt annað.