Jóla hvað?

Ólína fór á sitt fyrsta ball í dag. Jólaball leikskólans. Hún grét ekkert við komu jólasveinanna en þeir voru nú reyndar heldur ekkert að kássast upp á hana. Vildi þó ekkert stoppa til að spjalla við þá þegar gjöfin frá þeim var afhent. En annaðhvort hefur jólaböllum farið aftur eða jólaböllin sem ég fór á sem barn verið í hágæðaflokki.

* * *

Heimaprófi verður skilað fyrir hádegi á morgun. Verð ég þá tæknilega komin í jólafrí. Þó er stefnt á að lesa nokkrar greinar og jafnvel tvær MA ritgerðir fyrir jól. Nema nátturúlega það rigni yfir mig tilboðum um að leika við skemmtilegt fólk.

One Response to “Jóla hvað?”

  1. Vigdís Says:

    Hey mig langaði að koma með á jólaball!
    En ég er með boð um að leika við þig og Ólínu, og ég er skemmtileg. Bara þegar ég er búin í skólanum.
    Mig langar að baka annaðhvort kókoskúlur eða piparkökur. Ólína getur líka hjálpað. Ég er viss um að hún er sérlega góð í að borða deig. Enda er það betra en kökurnar sjálfar.

Leave a Reply