Týnd jólaljós
Mér er illt í bakinu og er með aumar herðar. Heimapróf er í fullum gangi svo ég get varla vænst þess að verkirnir hverfi í bráð. Það vill til að ég á pantaðan nuddtíma hjá Bobbu í Keflavík þegar öllu lærdómsveseni verður lokið. Hitapoki verður að duga fram að því.
* * *
Við bara finnum alls ekki jólaseríurnar okkar. Erum búin að leita í öllum skápum og í geymslunni. Mig er eiginlega farið að gruna að við höfum hennt þeim í einhverju tiltektaræðinu. Það þýðir því líklega ekki annað en að fjárfesta í nýjum jólaljósum. Kannski er það bara ágætt, þar sem ekki tókst mér að leggja mitt af mörkum í óráðsíu og eyðslusemi í aðdraganda forvals.
Annars sá ég merkilegt sparnaðarráð í Blaðinu í dag. Þar var fólki bent á að spara mætti peninga með því að aftengja talhólfið á símanum sínum þegar farið væri í gjafaverslunarferðir til útlanda. Það sé nefnilega svo dýrt að hringja í talhólf þegar maður er í útlöndum. Einhvernveginn sé ég nú allt annan sparnaðarpunkt í þessu litla ráði.