Sundurliðaðir reikningar

Ég þakka þeim sem studdu mig í forvali Vg í gær. Ég get ekki annað en verið himinlifandi með mína útkomu. Ég stefndi á fjórða sæti og því náði ég. Ég vil einnig óska öðrum sem hlutu góða kosningu til hamingju með árangurinn og þakka öllum frambjóðendunum þrjátíu fyrir skemmtilega kosningabaráttu. Kosningavakan var bráðskemmtileg og ég sem er orðin verulega slakur djammari var ekki komin heim fyrr en rétt fyrir kl. 3 í nótt.

Ég ætla hér með að leggja fram áætluð útgjöld mín vegna forvalsins:

Framlög í kaffisjóð flokksins á hinum ýmsu fundum og uppákomum í aðdraganda forvals kr.900
Efniskostnaður vegna kökubakstur fyrir framboðsfund kr. 500
Hækkaður símakostnaður kr. 400
Svartar bómullarsokkabuxur keyptar sérstaklega fyrir kosningavökuna kr.2700
Akstur með stuðningsmann á kjörstað kr. 100
Keypt eintak af Hér og nú kr. 395

Þetta gera samtals kr. 4995

Það vill til að sokkabuxurnar sem eru aðal útgjaldaliðurinn hér get ég notað margoft aftur.

10 Responses to “Sundurliðaðir reikningar”

  1. Erna E. Says:

    Til hamingju með árangurinn. :)

  2. Salný Says:

    til hamingjumín kæra.. glæsilegt hjá þér

  3. helga Says:

    Flott hjá þér Steinunn og til hamingju! Bendi á að svo er hægt að föndra jólakort úr Séð og Heyrt eða nota sem jólaskraut/pappír!

  4. Bryndís Says:

    Til lukku væna mín með góðan árangur

  5. Jón Knútur Says:

    Til lukku! Þetta var glæsilegt hjá þér.

  6. Eiríkur Says:

    Til hamingju með glæsilegan árangur. Þeir fá minna sumir sem eyða meir.

  7. Kristín Says:

    Til hamingju. Gaman að sjá þig þarna á listanum.

  8. Hrönn Says:

    Til hamingju, þetta var glæsilegt. Fyrirgefðu hvað ég er sein og að hafa ekkert heyrt í þér, hef bara hugsað til þín, lofa þér því. Já þetta voru greinilega stórútgjöld manneskja, þú ættir nú kannski að halda námskeið í því hvernig hægt er að ná árangri í prófkjöri án þess að nota peninga.

  9. Jóhanna Says:

    Ætli galdurinn sé ekki að vera heiðarlegur og skýr. Eða hvað segir þú Steinunn, fáum við ekkert að frétta af frambjóðandanum meir? Til hamingju enn og aftur - þú ert líklega bara enn að fagna (á sparsaman hátt:)

  10. Aðalheiður Says:

    Til hamingju með árangurinn. Er ekki kaffihúsahittingur í næstu viku á Café Milano?