Jóla hvað?
Sunday, December 10th, 2006Ólína fór á sitt fyrsta ball í dag. Jólaball leikskólans. Hún grét ekkert við komu jólasveinanna en þeir voru nú reyndar heldur ekkert að kássast upp á hana. Vildi þó ekkert stoppa til að spjalla við þá þegar gjöfin frá þeim var afhent. En annaðhvort hefur jólaböllum farið aftur eða jólaböllin sem ég fór á sem barn verið í hágæðaflokki.
* * *
Heimaprófi verður skilað fyrir hádegi á morgun. Verð ég þá tæknilega komin í jólafrí. Þó er stefnt á að lesa nokkrar greinar og jafnvel tvær MA ritgerðir fyrir jól. Nema nátturúlega það rigni yfir mig tilboðum um að leika við skemmtilegt fólk.