Loksins loksins
Kaninkan er loks komin upp aftur. Tímann sem hún hefur legið niðri hef ég m.a. nýtt til ritgerðarskrifa. Sem er gott.
* * *
Í dag fékk ég skemmtilega sendingu frá Jóhönnu í dk. Hún innihélt dvd diska með þáttum sem nefnast Klovn og gægju bók hana Ólínu um litla skjaldböku sem eignast gæludýr. Takk Jóhanna.
Ef þættirnir reynast góðir mun ég beita mér fyrir því sem menntamálaráðherra að fá þá sýnda á rúv.
Ólínu finnst nýja bókin skemmtileg. Hún hafði þó eiginlega ekki tíma til að skoða myndirnar, þar sem hún var mjög upptekin af því að gægjast gegnum flettiflipann og segja BÖ.
* * *
SHA hafa skipt um nafn og heita nú Samtök Hernaðarandstæðinga. Ég gat því miður ekki greitt þessu nafni atkvæði mitt á landfundi SHA í gær, þar sem ég var Silfri Egils meðan umræðan og atkvæðagreiðslan fór fram.
* * *
Smá viðtal verður við mig í Blaðinu á morgun. Fólk verður því að gefa sér tíma til að lesa Blaðið og passa að fletta ekki óvart framhjá mér. Það verður spennandi að sjá hvernig myndin af mér og mótmælaskiltinu mínu kemur út.
November 28th, 2006 at 9:44 pm
Blessuð Steinunn mín. Ég ætlaði einmitt að hafa orð á því að ég hefði bara ekkert komist inn á síðuna þína í langan tíma, hélt auðvitað að það væri eitthvað að hjá mér
hún er nú meira snúllan þessi stelpa þín
Gat ekki séð neinn afgerandi svip, nema með fínar kinnar eins og þú
Er Stefán kannski svona kinnavænn líka?! En gaman að fylgjast með þér og ykkur, hafið það gott og gangi þér vel!
Ætlaði nú bara að segja þér að ég var að lesa viðtalið við þig í Hér og Nú. Fínt viðtal og æðislegar myndirnar af ykkur mæðgum
Kveðja frá Íslandsbryggju.
November 29th, 2006 at 11:39 am
verði ykkur bara að góðu. Þeim er sko ekkert heilagt í þessum þáttum. Hlakka til að vita hvað ykkur finnst:) og nú ætla ég að fara að skoða ykkur mæðgur í Hér og nú.