Heja Norge
Ég er ánægð með norska utanríksiráðherrann. Veit þó ekki hvort það borgi sig að vera of bjartsýn á að þessar ógeðssprengjur verði bannaðar.
Klasasprengjur verði bannaðar
Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra
Noregs, boðar alþjóða ráðstefnu í Ósló
á næsta ári, um að klasasprengjur verði
bannaðar í hernaði. Störe segir að
Norðmenn vilji boða til stefnunnar lönd
og stofnanir sem þeir telji sammála sér
um að ótækt sé að nota klasasprengjur
enda valdi þær óbærilegum miska.
Umræður um klasasprengjur hófust á ný
eftir að Ísraelsher beitti slíkum
vopnum gegn Hizbollah-hernum í Suður-
Líbanon í sumar. Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefur hvatt til þess að klasasprengjur
verði bannaðar.