Tannkrem

Ég hef stundum velt því fyrir mér þegar ég horfi á erlendar bíómyndir eða sjónvarpsþætti, þar sem fólk tannburstar sig, hvernig það komist hjá því að tannkremið freyði út um allan munn. Nú hef ég komist að sannleikanum í því efni.

Zendium tannkrem freyðir bara alls ekki. Og ég hef komist að því að það er asnalegt að tannbursta sig með tannkremi sem freyðir ekki. Mér finnst tennurnar bara alls ekki verða eins hreinar og tilfinningin í munninum er bara ekki rétt.

Mínar tennur verða því hér eftir bara burstaðar með freyðandi tannkremi.

Þetta blogg var í boði Colgate og Sensodyne - tannkrems sem freyðir.

Svo verð ég náttúrulega að kanna hvort fleiri tannkremstegundir fáist á Íslandi og halda rannsóknum mínum á freyðanleika tannkrems áfram.

5 Responses to “Tannkrem”

  1. Johanna Says:

    Þetta finnst mér athyglisverð færsla í ljósi þess að á hverju kvöldi spjalla Iben Hjele og tannlæknirinn hennar saman í auglýsingu þar sem hún kvartar yfir nákvæmlega þessu sem þú talar um!!! Tannlæknirinn fullyrðir hins vegar að Zendium sé ákaflega gott tannkrem og þau þurfi alls ekki að froðan sem geri það að verkum að tennurnar verði hreinar og fínar. Og ekki bara það heldur fékk Helgi Gnýr gefins svona tannkrem þegar hann fór í skoðun um daginn. Sjálf bursta ég tennurnar með freyðandi tannkremi og það vill HG líka en ég vildi óska að honum líkaði betur við Zendium því það er ömurlegt að bursta tennurnar í honum og hann þarf að skyrpa svona 4-8 sinnum meðan á einni tannburstun stendur sem er alls ekki samboðið minni þolinmæði. Þannig er nú það. Þetta var uppbót fyrir blogglausan dag á mínu eigin bloggi;)

  2. Bryndís Says:

    Zendium er án efa besta tannkrem sem ég hef notað og mæli ég eindregið með því

  3. helga Says:

    Hvernig væri að orðræðugreina Zendium túbuna og Colgate og sjá hvor býður upp á “skynsamlegri” (les:vistvænni, kvenvænni) orðræðu?

  4. hildigunnur Says:

    Jóhanna, notarðu ekki bara allt of mikið tannkrem fyrir barnið? Það á alveg að vera nóg að nota bara smá, alls ekki eins og í tannkremsauglýsingunum þar sem heil rönd af kremi er sett á burstann (ojbara)

  5. Johanna Says:

    Það gæti verið, þarf e-ð að endurskoða þetta allt saman - en ég nota nú samt ekki auglýsingarönd:)