Matarhelgin mikla

Fórum á Vox í gærkvöldi. Okkur fannst árstíðarmatseðillinn eiga vel við veðrið, svo við gæddum okkur á hreindýri og heiðargæs og drukkum rauðvín með. Komum heim södd og sæl og sváfum svo út í morgun þar sem Ólínan hafði gist hjá afa sínum og ömmu.

Maturinn sem við fengum var ofsalega góður en þó verður að viðurkennast að hreindýr sem mamma eldar er enn betra. Plús fyrir mömmu og það hversu frábær kokkur hún er.

* * *

Í kvöld buðu Auður, Freyr og Freyja fjölskyldunni á Mánagötu í dýrindis heimabakaðar pizzur. Það var sérdeilis vel til fundið hjá þeim og þökkum við kærlega fyrir okkur.

Það var mikill munur á því að sjá Ólínu og Freyju leika sér núna, miðað við þegar þær hittust síðast fyrir einhverjum vikum. Þá kunni Ólína ekki að leika við aðra krakka og var bara hálf hrædd við Freyju. Nú er hún hinsvegar veraldarvön leikskóladama. Þær knúsuðust og kysstust og voru mjög meðvitaðar um að þær væru sætar og sniðugar. Svo fóru þær í skrækjakeppni. Semsagt mikið stuð. Ólína var líka hrifin af kisunum og fannst þær ekkert háskalega en bara spennandi.

Núna er ég bara södd og sibbin. Sé til hvort ég nenni að horfa á Örninn eða skríð bara beint í bælið.

3 Responses to “Matarhelgin mikla”

  1. Hrönn Says:

    Þú hefur vonandi valið að horfa á Örnin, ferlega sjúkur samt. Ertu ekki farin að sakna mín? Er á leið suður þriðjudaginn 21. nóv eða eftir viku ;-)

  2. steinunn Says:

    Já mér finnst Örninn vera orðinn full óhugnarlegur fyrir mína viðkvæmu sál. Stefán var einmitt að spyrja um daginn hvort ekki væri von á þér í heimsókn. Við hlökkum til að fá þig. Stefnir meira að segja í nýtiltekið gestaherbergi.

  3. Heiða Málfríður Says:

    Hehe heiðargæsin minnir mig bara á þegar Jón og pabbi voru að tala um gæsaveiðarnar hans Jóns í einhverju ferðalagi og ég var í fýlu við Jón alla ferðina eða það sem eftir var af henni og í svona 3 mánuði á eftir fyrir að kalla mig alltaf Heiðu gæs! :( ég hélt náttúrulega að gæsir gætu ekki heitið neitt annað en bara “gæsir” á þeim tíma… :/