Huggulegur morgun
Við Ólína erum búnar að vera tvær í kotinu síðan í gær. Fjölskyldufaðirinn er á Flúðum með vinnunni sinni. Hann er þó væntanlegur heim aftur seinnipartinn.
Í morgun þegar við ætluðum að fara í Leikskólan var annað afturdekkið á fína græna bílnum mínum alveg loftlaust. Ég er ekki góð í að skipta um dekk, hvað þá í myrkri og roki og með eitt stykki Ólínu. Ég ákvað því að við mæðgur yrðum bara heima að hygge os.
Og við höfðum það svo sannarlega huggulegt. Kubbuðum mikið, hlustuðum á Emil í Kattholti, borðuðum plómur og Ólína horfði á Bubbi byggir meðan mamman braut saman þvott.
Seinnipartinn verður svo farið í að rífa dekkið undan bílnum og fara í Nesdekk og fá meira loft ásamt skýringum á því hversvegna glænýtt dekk lekur.