Enn ein birtingarmynd feðraveldisins
Það var eins gott að ég fór ekkert að brasa við að skipta um dekk í morgun. Ég hefði nefnilega aldrei haft það af að ná dekkinu sjálfu af. Stefán þurfti að beita öllum þunga til að hoppa á felgulyklinum. Er hann þó talsvert sterkari og þyngri en ég.
Ég er sannfærð um að það eru samantekin ráð karlmanna sem vinna á dekkjaverkstæðum að skrúfa dekkin svo hrikalega fast á að litlar og léttar konur eins og ég eiga ekki nokkurn séns á að skipta um dekk upp á sitt einsdæmi heldur verðum við að reiða okkur á hjálp karla. Svo er sú ályktun dregin að konur kunni einfaldlega ekki að skipta um dekk meðan hið rétta er auðvitað að þær eru ekki nógu miklir hjassar til að ná dekkjunum af.
November 10th, 2006 at 8:14 pm
Ég held þetta sé til að dekkin tetti ekki af…:)
November 11th, 2006 at 12:15 pm
Þú verður bara að borða fleiri amreríska kleinuhringi!
November 14th, 2006 at 6:23 pm
við erum nú ekki allar svona litlar og léttar