Misskilinn jólaandi
Wednesday, November 29th, 2006Hrós Fréttablaðsins fá “Sirrý og félagar hennar í Íslandi í bítið sem ætla að sýna jólaandann í verki með því að bjóða þurfandi fjölskyldu upp á alsherjar yfirhalningu á heimili hennar.”
Ég er sannfærðum að þessi fjölskylda er vel að heimilisyfirhalningunni komin. Mér finnst það hinsvegar vera verulega misskilinn jólaandi að auglýsa bága stöðu heillrar fjölskyldu með þessum hætti svo við hin getum séð hvað Sirrý og félagar hennar eru góð að setja smá plástur á ástandið.
Væri ekki nær að breyta samfélaginu svo engin fjölskylda sé svo fátæk að hún geti ekki sjálf komið heimili sínu í betra ástand. Það skelfir mig mjög að við sem þjóð séum farin að líta á ölmussugjafir til fátækra sem part af hinu daglega lífi, sem við kippum okkur lítið sem ekkert upp við. Eða viljum við kannski bara ylja okkur við þá tilhugsun að það sé nú alltaf sælla að gefa en þiggja.
Nú styttist í að við förum að fá árlegar fréttir af fólki sem bíður í röðum hjá Hjálparstofnun Kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd og fleiri góðgerðarstofnunum eftir að fá afhenntan jólamat. Væri ekki nær að hækka lágmarkslaun í landinu, breyta almannatryggingakerfinu og snarhækka allar bætur og þétta velferðarkerfið svo enginn í okkar ágæta landi sé svo fátækur að hann geti ekki keypt í jólamatinn fyrir sína eigin peninga?
* * *
Í kvöld munu ungir frambjóðendur í forvali VG komandi laugardag kynna sig og stefnumál sín. Þar verð ég.