Ekki ómissandi?
Thursday, October 5th, 2006Ólína er ein í leikskólanum. Ég kvaddi hana um níu leytið og mun ekki sækja hana aftur fyrr en klukkan hálf eitt. Hún á semsagt að borða hádegismatinn með hinum börnunum í dag. Stúlkan var tillitssöm við móður sína og grét þegar hún fór. Það verður því spennandi að fá af því fréttir í hádeginu hversu lengi barnið hefur grátið.
Annars er planið að nota tíman til þess að taka til í pósthólfinu og lesa svosem eins og eina grein um kynlíf fatlaðra. Skothellt plan.