Jón Hilmar

Jóhanna kom með rétt svar við spurningu minni og marði það að svara aðeins á undan Salnýju. Auðvitað var maðurinn sem ég hugsaði mér Jón Hilmar. Enginn annar kom til greina. Ég geri mér svosem grein fyrir því að það er fúlt fyrir ykkur sem hin sem áttuð ekki séns í að svara þessu en þið verðið bara að hugga ykkur við það að þetta var þeim mun skemmtilegra fyrir okkur sem sjá að Jón Hilmar augljósa svarið.

Var það ekki sumarið 1993 sem Jón Hilmar hafði það starf að moka fiski inn á færibandið á flæðilínunni í frystihúsinu á Norðfirði? Eða var það kannski ‘94? Allavega var það gott sumar og ótrúlega skemmtilegt þrátt fyrir að hreinsun beinagarða og hringormatínsla fari seint á lista yfir skemmtilegustu störfin.

Hverjir aðrir en við hefðu annars hugsanlega getað svarað þessu? Hrönn líklega. BZ hefur líklega verið komin á pósthúsið þegar hér er komið sögu? Eða hvað?

Einkavinablogg er skemmtilegt - einkum ef þú ert einkavinur.

6 Responses to “Jón Hilmar”

  1. helga Says:

    Takk Steinunn fyrir feykiskemmtilega spruningarkeppni, haltu þessu endilega áfram - bendi þér á að hafa samband við Pál eða Hildi sem fengu gefins afar skemmtilega og þarfa byrjenda-prjónabók. Hvort hún fór á Grettisgötuna eða Hagamelinn veit ég ekki en alla vega..

  2. Johanna Says:

    Thetta var mjog upplifgandi spurningakeppni midad vid tha sem haldid hefur verid uti hja maka thinum thar sem eg vissi aldrei neitt. Mer finnst ad thu ættir ad halda thessu afram:) Alveg merkilegt hvad thessi leikur gat haldid humornum uppi - ad hugsa ser mann.

  3. Vigdís Says:

    einkahúmor. pfft

  4. Þóra Jóh Says:

    Hei, það er ég sem á bókina “Á prjónunum”, kennslubók fyrir grunnskóla, gefin út af Námsgagnastofnun. Bókin hæfir mínu þroskastigi ágætlega.

  5. Hrönn Says:

    Jú ég man eftir þessu og líka …er þetta sími eða ;-) við vorum svo sannarelga skemmtielgar en mikið djöfulli var vinnan leiðinleg

  6. Salný Says:

    hvahvahva þetta var alveg feikigott sumar, en ekki tók maður nú mikinn lit, lokaður inni í frystihúsi frá kl. 06 til kl. 17. Og leikurinn var alveg feikiskemmtilegur. Ef þú myndir hugsa þér aftur mann myndi ég giska á Fjalar, Jón Knút eða Eyjon… kv. Salný