Ef ég kynni að prjóna
Í allan dag hefur mér fundist vera sunnudagur. Það er ekki slæmt því þá má segja að ég eigi morgundaginn til góða. Líklega er ég svona rugluð í dögunum vegna þess að ég hékk heima með veika Ólínu allan föstudaginn. Hún er hinsvegar á batavegi. Hitinn að lækka og minni grátur. E.t.v. var nóg fyrir hana að finna lyktina af pensilíninu.
* * *
Einhver sem ég þekki á skemmtilega prjónabók fyrir byrjendur. Ég man bara ekki hver. Allt í einu er að koma einhver prjónalöngun yfir mig. Ég er hinsvegar ekki mikil prjónakona, þó svo að ég hafi nú stöku sinnum prjónað ullarleista og tvíþumla vetlinga. Mér virðist hinsvegar fyrirmunað að skilja prjónauppskriftir. En ef einhver kannast við að eiga svona prjónabók þætti mér gaman að fá hana lánaða.
Annars var ég að kaupa mér forláta ullarvesti. Svona þunna stutterma lopapeysu. Hún er mega flott og mega hlý. Og ég hlýt því að vera ótrúlega hott gella. Á mánudaginn er svo stefnan tekin í Janusarbúðina - nei, ekki K-bónus Gests Janusar - þar ætla ég að vita hvort ég geti ekki fjárfest í ullarnærhaldi. En trú mín er sú að með því að eignast slíka flík geti ég komið í veg fyrir að ég krókni í vetur. Ég tala nú ekki um ef ég væri í ullarnærbol og ullarvesti utanyfir. Þar utanyfir gæti ég jafnvel verið í lopapeysu.
* * *
Tveir hafa spreytt sig á spurningu minn. Báðir komu með ágætis ágiskanir en hvorug er þó rétt. Nú kynni einhver að halda að á þessi stigi máls komi ég með nánari vísbendingu um það hver maðurinn er. Svo er þó ekki. Ég held því áfram að hugsa mér mann. Hver er maðurinn?