Ég hugsa mér mann

Góður matur í Friðarhúsi að vanda. Frábær mæting. Greinilegt að erindi Kjartans Ólafssonar laðaði fólk á staðinn. Barnið var furðu kátt, þrátt fyrir að læknir hafi í morgun úrskurðað hana með eyrnabólgu í hægra eyra og bólgna eitla. Hún er því komin á sinn fyrsta pensilínkúr. Vonandi verður hún þó fljót að hrista þetta af sér og vonandi fær fjölskyldan aðeins meiri svefn í nótt en hún hefur fengið tvær síðustu nætur.

* * *

Annasamur dagur er framundan. Fyrst fundur hjá kvennahreyfingu ÖBÍ og svo aðalfundur Ásatrúarfélagsins. Á von á því að fundur kvennahreyfingarinnar verði ánægjulegri og að minna verði rifist þar.

* * *

Það er móðins að hafa spurningakeppni á síðunni sinni. Ég vil vera með. Því hugsa ég mér mann. Getur einhver giskað hver maðurinn er?

5 Responses to “Ég hugsa mér mann”

  1. Sverrir Says:

    Er það Garðar Sverrisson?

  2. Freyr Says:

    Er maðurinn kona? Giska á Ólínu

  3. Johanna Says:

    Jón Hilmar!

  4. Salny Says:

    ahh Jóhanna stal minni uppástungu, ætlaði að segja Jón Hilmar… og það sem verra er, ég hef enga betri

  5. fífa Says:

    er hann kona?