Frosin
Mikið skelfilega er kalt. Morgunlesturinn gengur ferlega hægt sökum skjálfta. Þó er ég í ullarsokkabuxum innanundir gallabuxunum, í ullarsokkum, lopapeysu og með teppi. Er búin að skrúfa upp í tveimur ofnum en líklega fer þetta að verða spurning um að ná sér í húfu og vettlinga. Kannski heitt kakó sé bara málið.
October 25th, 2006 at 8:50 am
Gætir prufað að fara í heitt bað eða ljós, það er líka nauðsynlegt að hreifa sig soldið til að fá blóðið af stað. Annars er ég sko komin í úlpu og snjóbuxur!