Sumir eru meiri stuðpinnar en aðrir
Þessi helgi hefur verið eins óspennandi og verða má. Fundir og ritgerðaskrif.
Dagurinn í dag hefur allur farið í að sitja sveitt við tölvuna. Það er greinilegt að ég er ekki í æfingu. Ætla samt að halda áfram í klukkutíma og segja þessu svo lokið í dag.
Það er þó bót í máli að barnið er með sniðugra móti þessa dagana. Greinilegt er að það að byrja á leikskóla hefur skilað kipp í þroska svo nú eru ný uppátæki daglegt brauð. Palli dúkka á þó ekki sjö dagana sæla þar sem hann er iðulega fórnarlamb uppátækjanna. Það er t.d. ekki lítið sem hann hefur þurft að borða Ólínu til samlætis að undanförun, eins hefur hann þurft að sitja langtímunum saman á koppnu - buxnalaus að sjálfsögðu og orðið að láta sig hafa það að eigandinn reyni að koma á hann bleyju - utanyfir buxur reyndar.
Það er semsagt greinilegt hvaða fjölskyldumeðlinur heldur uppi stuðinu á heimilinu. Stebbi greyið er ekki einusinni talinn með. Hann dembir þó spurningum á netið milli þess sem hann hefur ofanaf fyrir barninu.
October 17th, 2006 at 8:37 am
Gott að þú ert dugleg að læra
En hvað segiru af hjólreiðum hefur þú prófað?
October 17th, 2006 at 8:32 pm
Nei, á af skiljanlegum ástæðum ekki hjól og enginn hefur boðið hjólið sitt fram í svona glannaskap. Kannski eins gott fyrir mig.