Um hjólreiðar (mínar)
Í dag er fyrsti dagurinn sem Ólína tekur síðdegislúrinn sinn á leikskólanum. Ég mun því ekki sækja hana fyrr en klukkan þrjú.
Ég hef nýtt daginn til hins ýtrasta. Sem sagt sofið. Ég er ekki fjarri því að svefninn hafi skilað þeim árangri að leiðnin liður í tærnar er betri. Mér datt meira að segja í hug áðan að gaman gæti verið að prufa að hljóla - þó vissulega sé að jafnframt háskaleg tilhugsun. En það eru 8-9 ár síðan ég síðast reyndi að setjast upp á reiðhjól. Það þýðir nefnilega ekkert að hjóla ef jafnvægisskynið er ekki til staðar. Nema náttúrulega manni fynnist eftirsónarvert og gaman að detta á hjóli. Það hefur mér aldrei fundist.
Á eftir ætla ég að kíkja í bjóð sem haldið er fyrir framhaldsnema í mannfræði og þjóðfræðiskor. Er samt smeik um að ég eigi ekki eftir að þekkja neinn þar.
October 12th, 2006 at 4:15 pm
MÍ!!! Þekkir mig!!!
October 12th, 2006 at 4:23 pm
Óli verður þar
October 12th, 2006 at 4:51 pm
…ætladi ad fara ad segja thad - Oli verdur orugglega thar:) Annars vona eg ad hjolaturinn hafi gengid vel sem og eftrmiddagslúrinn hennar Ólínu. Mer finnst gaman thegar thu ert dugleg ad blogga.