Kjelling
Við mæðgur erum búnar að vera einar heima í kvöld. Heimilisfaðirinn er úti að vinna fyrir salti í grautinn. Þar sem ég er með afbrigðum andlaus þessa dagana hef ég eytt kvöldinu fyrir framan sjónvarpið.
Fyrst horfðum við mæðgur á Jón Ólafsson ræða við Guðna Fransson ásamt allskonar útúrdúrum. Ég er ekkert voðalega hrifin af þessum nýju þáttum hjá Jóni. Finnst hann vaða allt of mikið úr einu í annað. Það er allskonar áhugavert fólk sem hann fær til sín en enginn fær það pláss sem mér finnst hann eiga skilið.
Svo eftir að barnið var sofnað horfði ég á hinar rosknu nektarfyrirsætur. Kellingamynd - sem sýnir líklega best hvað ég er orðin mikil kelling.
Ég ætlaði svo að halda sjónvarpsmaraþoninu áfram og horfa á sænsku glæpamyndina en í upphafi hennar kom viðvörum um að í henni væri ljótt ofbeldi. Ég bara get ekki horft á myndir með ljótu ofbeldi og hef engan áhuga á að öðlast meiri færni á því sviði svo ég bara slökkti á sjónvarpinu. -Ég geri ráð fyrir að þetta undirstriki hvað ég er agaleg kjelling.
Netið verður því bara að duga til að stytta mér stundir þar til ég drattast í bælið. Verst að ég skuli ekki eiga rúllur til að setja í hárið…
October 13th, 2006 at 9:22 am
Calander girls er náttúrulega bara yndisleg mynd sem ég gat ekki horft á sökum þess að inniloftnetið okkar virkar ekki og það er amk mánaðarbið eftir helv símakallinum sem þarf að tengja ADSL-ið í sjónvarpið okkar. En gott að þú gast notið hennar
October 14th, 2006 at 1:06 am
Það er töff að vera kelling.