Archive for October, 2006
Jón Hilmar
Saturday, October 28th, 2006Jóhanna kom með rétt svar við spurningu minni og marði það að svara aðeins á undan Salnýju. Auðvitað var maðurinn sem ég hugsaði mér Jón Hilmar. Enginn annar kom til greina. Ég geri mér svosem grein fyrir því að það er fúlt fyrir ykkur sem hin sem áttuð ekki séns í að svara þessu en þið verðið bara að hugga ykkur við það að þetta var þeim mun skemmtilegra fyrir okkur sem sjá að Jón Hilmar augljósa svarið.
Var það ekki sumarið 1993 sem Jón Hilmar hafði það starf að moka fiski inn á færibandið á flæðilínunni í frystihúsinu á Norðfirði? Eða var það kannski ‘94? Allavega var það gott sumar og ótrúlega skemmtilegt þrátt fyrir að hreinsun beinagarða og hringormatínsla fari seint á lista yfir skemmtilegustu störfin.
Hverjir aðrir en við hefðu annars hugsanlega getað svarað þessu? Hrönn líklega. BZ hefur líklega verið komin á pósthúsið þegar hér er komið sögu? Eða hvað?
Einkavinablogg er skemmtilegt - einkum ef þú ert einkavinur.
Ef ég kynni að prjóna
Saturday, October 28th, 2006Í allan dag hefur mér fundist vera sunnudagur. Það er ekki slæmt því þá má segja að ég eigi morgundaginn til góða. Líklega er ég svona rugluð í dögunum vegna þess að ég hékk heima með veika Ólínu allan föstudaginn. Hún er hinsvegar á batavegi. Hitinn að lækka og minni grátur. E.t.v. var nóg fyrir hana að finna lyktina af pensilíninu.
* * *
Einhver sem ég þekki á skemmtilega prjónabók fyrir byrjendur. Ég man bara ekki hver. Allt í einu er að koma einhver prjónalöngun yfir mig. Ég er hinsvegar ekki mikil prjónakona, þó svo að ég hafi nú stöku sinnum prjónað ullarleista og tvíþumla vetlinga. Mér virðist hinsvegar fyrirmunað að skilja prjónauppskriftir. En ef einhver kannast við að eiga svona prjónabók þætti mér gaman að fá hana lánaða.
Annars var ég að kaupa mér forláta ullarvesti. Svona þunna stutterma lopapeysu. Hún er mega flott og mega hlý. Og ég hlýt því að vera ótrúlega hott gella. Á mánudaginn er svo stefnan tekin í Janusarbúðina - nei, ekki K-bónus Gests Janusar - þar ætla ég að vita hvort ég geti ekki fjárfest í ullarnærhaldi. En trú mín er sú að með því að eignast slíka flík geti ég komið í veg fyrir að ég krókni í vetur. Ég tala nú ekki um ef ég væri í ullarnærbol og ullarvesti utanyfir. Þar utanyfir gæti ég jafnvel verið í lopapeysu.
* * *
Tveir hafa spreytt sig á spurningu minn. Báðir komu með ágætis ágiskanir en hvorug er þó rétt. Nú kynni einhver að halda að á þessi stigi máls komi ég með nánari vísbendingu um það hver maðurinn er. Svo er þó ekki. Ég held því áfram að hugsa mér mann. Hver er maðurinn?
Ég hugsa mér mann
Friday, October 27th, 2006Góður matur í Friðarhúsi að vanda. Frábær mæting. Greinilegt að erindi Kjartans Ólafssonar laðaði fólk á staðinn. Barnið var furðu kátt, þrátt fyrir að læknir hafi í morgun úrskurðað hana með eyrnabólgu í hægra eyra og bólgna eitla. Hún er því komin á sinn fyrsta pensilínkúr. Vonandi verður hún þó fljót að hrista þetta af sér og vonandi fær fjölskyldan aðeins meiri svefn í nótt en hún hefur fengið tvær síðustu nætur.
* * *
Annasamur dagur er framundan. Fyrst fundur hjá kvennahreyfingu ÖBÍ og svo aðalfundur Ásatrúarfélagsins. Á von á því að fundur kvennahreyfingarinnar verði ánægjulegri og að minna verði rifist þar.
* * *
Það er móðins að hafa spurningakeppni á síðunni sinni. Ég vil vera með. Því hugsa ég mér mann. Getur einhver giskað hver maðurinn er?
Það hlaut að koma að því
Thursday, October 26th, 2006Barnið hefur verið ótrúlega duglegt að borða allan mat. Gúffar í sig pizzu með túnfiski og þystilhjörtum, sniglum í hvítlaukssmjöri og ólífum ef þær eru í boði. Það eina sem hún hefur fúlsað við er kál - að soðnu blómkáli undanskyldu. Í gær leist henni hinsvegar ekki á kvöldmatinn. Steikt lifur á greinilega ekki að fara ofan í hennar maga.
Og við sem vorum svo hagkvæm í heimilisrekstrinum að kaupa svolítinn slatta af frosinni lifur á kostakjörum.
Næst þegar lifur verður í matinn verður hún borin fram með fansý sósu. Barnið er nefnilega mikill sósuaðdáandi og vonandi fellur hún fyrir lifur í dulargerfi.
Frosin
Tuesday, October 24th, 2006Mikið skelfilega er kalt. Morgunlesturinn gengur ferlega hægt sökum skjálfta. Þó er ég í ullarsokkabuxum innanundir gallabuxunum, í ullarsokkum, lopapeysu og með teppi. Er búin að skrúfa upp í tveimur ofnum en líklega fer þetta að verða spurning um að ná sér í húfu og vettlinga. Kannski heitt kakó sé bara málið.
Sumir eru meiri stuðpinnar en aðrir
Sunday, October 15th, 2006Þessi helgi hefur verið eins óspennandi og verða má. Fundir og ritgerðaskrif.
Dagurinn í dag hefur allur farið í að sitja sveitt við tölvuna. Það er greinilegt að ég er ekki í æfingu. Ætla samt að halda áfram í klukkutíma og segja þessu svo lokið í dag.
Það er þó bót í máli að barnið er með sniðugra móti þessa dagana. Greinilegt er að það að byrja á leikskóla hefur skilað kipp í þroska svo nú eru ný uppátæki daglegt brauð. Palli dúkka á þó ekki sjö dagana sæla þar sem hann er iðulega fórnarlamb uppátækjanna. Það er t.d. ekki lítið sem hann hefur þurft að borða Ólínu til samlætis að undanförun, eins hefur hann þurft að sitja langtímunum saman á koppnu - buxnalaus að sjálfsögðu og orðið að láta sig hafa það að eigandinn reyni að koma á hann bleyju - utanyfir buxur reyndar.
Það er semsagt greinilegt hvaða fjölskyldumeðlinur heldur uppi stuðinu á heimilinu. Stebbi greyið er ekki einusinni talinn með. Hann dembir þó spurningum á netið milli þess sem hann hefur ofanaf fyrir barninu.
Þunn
Friday, October 13th, 2006Þetta var fínt boð í gær. Það er hinsvegar aldrei skynsamlegt að skipta kvöldmatnum út fyrir rauðvín. En hver hefur svosem haldið að ég væri skynsöm.
Um hjólreiðar (mínar)
Thursday, October 12th, 2006Í dag er fyrsti dagurinn sem Ólína tekur síðdegislúrinn sinn á leikskólanum. Ég mun því ekki sækja hana fyrr en klukkan þrjú.
Ég hef nýtt daginn til hins ýtrasta. Sem sagt sofið. Ég er ekki fjarri því að svefninn hafi skilað þeim árangri að leiðnin liður í tærnar er betri. Mér datt meira að segja í hug áðan að gaman gæti verið að prufa að hljóla - þó vissulega sé að jafnframt háskaleg tilhugsun. En það eru 8-9 ár síðan ég síðast reyndi að setjast upp á reiðhjól. Það þýðir nefnilega ekkert að hjóla ef jafnvægisskynið er ekki til staðar. Nema náttúrulega manni fynnist eftirsónarvert og gaman að detta á hjóli. Það hefur mér aldrei fundist.
Á eftir ætla ég að kíkja í bjóð sem haldið er fyrir framhaldsnema í mannfræði og þjóðfræðiskor. Er samt smeik um að ég eigi ekki eftir að þekkja neinn þar.
Kjelling
Saturday, October 7th, 2006Við mæðgur erum búnar að vera einar heima í kvöld. Heimilisfaðirinn er úti að vinna fyrir salti í grautinn. Þar sem ég er með afbrigðum andlaus þessa dagana hef ég eytt kvöldinu fyrir framan sjónvarpið.
Fyrst horfðum við mæðgur á Jón Ólafsson ræða við Guðna Fransson ásamt allskonar útúrdúrum. Ég er ekkert voðalega hrifin af þessum nýju þáttum hjá Jóni. Finnst hann vaða allt of mikið úr einu í annað. Það er allskonar áhugavert fólk sem hann fær til sín en enginn fær það pláss sem mér finnst hann eiga skilið.
Svo eftir að barnið var sofnað horfði ég á hinar rosknu nektarfyrirsætur. Kellingamynd - sem sýnir líklega best hvað ég er orðin mikil kelling.
Ég ætlaði svo að halda sjónvarpsmaraþoninu áfram og horfa á sænsku glæpamyndina en í upphafi hennar kom viðvörum um að í henni væri ljótt ofbeldi. Ég bara get ekki horft á myndir með ljótu ofbeldi og hef engan áhuga á að öðlast meiri færni á því sviði svo ég bara slökkti á sjónvarpinu. -Ég geri ráð fyrir að þetta undirstriki hvað ég er agaleg kjelling.
Netið verður því bara að duga til að stytta mér stundir þar til ég drattast í bælið. Verst að ég skuli ekki eiga rúllur til að setja í hárið…