Menntavegurinn
Thursday, September 28th, 2006Ólína byrjaði í leikskólanum í morgun. Við stoppuðum í rúman klukkutíma og vorum aðallega úti með hinum krökkunum. Ólínu virtist bara lítast vel á þetta allt saman. Hún mótmælti í það minnsta kröftuglega þegar ég dróg hana út í bíl til að fara heim.
Henni tókst nú að detta aðeins á þessum stutta tíma og er nú með svolitla hruflu á nefinu. Á von á því að þetta verði ekki í síðasta skipti sem hún dettur í leikskólanum. Við munum svo náttúrulega aftur mæta glaðbeittar á morgun og jafnvel hafa pabban með til að sýna honum herlegheitin.
* * *
Hrossakjöt í kvöldmat. Verst að Bryndís er aðeins of langt í burtu til að skreppa í mat til okkar.