Archive for August, 2006

Friðarhús er málið á Menningarnótt

Thursday, August 17th, 2006

Það verður metnaðarfull og ekki síður áhugaverð dagskrá í Friðarhúsi á Menningarnótt

Næstkomandi laugardag verður efnt til menningarnætur í Reykjavík. Að því tilefni verður staðið fyrir margvíslegri dagskrá í Friðarhúsi.

Kl. 17 verður myndasýning, þar sem sýnd verður fágæt fréttakvikmynd frá Austurvelli 30. mars 1949 og í framhaldi af því myndin Nafnakall frá 1989, þegar hópur leikara sviðsetti atkvæðagreiðsluna við NATO-inngönguna á Alþingi.

Kl. 18 og 20:30 Sögur af mótmælavaktinni – þátttakendur í Kárahnjúkamótmælum sumarið 2006 segja frá reynslu sinni og upplifun í máli og myndum. Einstakar frásagnir og fjörlegar umræður.

Allir friðarsinnar hjartanlega velkomnir.

Svo er friðarvefurinn líka stútfullur af góðu lesefni.

* * *

Ætli það sé ekki best að horfa á hver verður rekinn heim í Rockstar svona fyrst maður er á annað borð vakandi. Brooke Burke lofar “huge surprise”.

Litla klifurdýrið

Tuesday, August 15th, 2006

Ólína, sem alltaf var svo varkár, er skyndilega orðið hið mesta klifurdýr. Það má ekki líta af henni því hún er á augabragði búin aðklifra upp í vagninn sinn eða upp á sófaarm og þaðan yfir í hægindastól. Í morgun var hún meira að segja að búa sig undir að klifra úr vagninum og upp á píanóið. Það merkilega er að hún er hinsvegar ennþá hálf smeik við þröskulda og stiga.

Vel heppnuð kertafleyting

Thursday, August 10th, 2006

Kertafleytingin í kvöld heppnaðist bara með eindæmum vel í kvöld. Skröns af fólki og gott veður. Flott ræða og fín fundarstjórn. Nýja hátalarakerfið held ég líka að hafi virkað vel. Kertin seldust meira að segja upp.

Ólína mætti að sjálfsögðu þó svo að það hafi nú aðeins verið komið fram yfir venjulegan háttatíma hjá henni. Planið hafði verið að láta hana sofna í kerrunni sinni en hún sperrtist öll upp þegar við komum niður í bæ og hún sá allt fólkið og kertaljósin. Hún steinsofnaði hinsvegar í bílnum á heimleiðinni, algjörlega búin á því.