Pómó
Við Stefán sátum uppi í sófa í Norðurmýrinn í gærkvöldi og horfðum á tónleikana með Sigur Rós í sjónvarpinu. Þegar við skiptum um rás til að horfa á eitthvað annað héldum við samt áfram að hlusta á tónleikana þar sem þeir bárust inn um stofugluggan.
* * *
Styttist í að við förum austur á Neistaflug. Ætli maður verði ekki að sýna smá samstöðu og taka á móti Knútnum þegar hann kemur í mark í Barðsneshlaupinu. Ég efa ekki að hann eigi eftir að standa sig með sóma.
August 9th, 2006 at 4:56 pm
Ég gleymdi nú að spyrja í partíinu um daginn en hvar var eiginlega móttökunefndin?
August 10th, 2006 at 12:02 am
Ég hef grun um að hún hafi flatmagað uppi í sófa meðan afinn var út að leika við barnið