Háskalegt heimili
Ég var spurð að því hvað væri að gerast innan ÖBÍ. Því er til að svara að mest lítið er að gerast innan ÖBÍ. Annars vísa ég bara í þessa tilkynningu.
Hó hvað ég er efni í góðan pólitíkus.
* * *
Amman klippti barnið í dag. Ekki það að hún hafiverið neitt sérlega hárprúð. Toppur og lokkar í hnakkanum voru hinsvegar úr sér vaxin. Og nú er barnið myndarlegt sem aldrei fyrr.
Annars er ljóst að við verðum að fara að herða stelpuna. Við fórum í gær og heimsóttum Freyju og fjölsk. Freyja vildi tuskast en Ólína kunni það ekki og varð bara hálf skellkuð. Ólínu varð líka heldur brugðið þegar hún sá kött spássera yfir stofugólfið á Guðrúnargötunni. Hingað til hefur hún einungis séð ketti utandyra og helst úr öruggri fjarlægð. Ég held að henni hafi fundist þetta mjög undarlegt ef ekki háskalegt heimili.
July 26th, 2006 at 10:42 am
Þú ert fínt efni í pólitíkus á meðan þú heldur þig við þennan milda stíl en ferð ekki að dæmi núverandi forsætisráðherra ÞKG (sem greinilega hefur lært allt sitt hjá Davíð Oddssyni) að snupra þann sem spyr. Takk fyrir upplýsingarnar - nú veit ég nákvæmlega helgmingi minna en áður um það sem ég spurði um og þá er tilgangi pólitíkusins náð - að gera fáfróðan almenning enn fáfróðari með flötum og innihaldslausum svörum.