It´s alive
Það tók talsverðan tíma að komast hingað inn enda þónokkuð langt um liðið síðan ég skrifaði eitthvað síðast. Ég var náttúrulega löngubúin að gleyma lykilorðinu og þurfti að viðhafa allskyns kúnstir til að verða mér úti um nýtt. Kannski þetta kenni mér að láta ekki svona langt líða milli skrifa aftur…eða kannski ekki.
Ástæða þess að ég vildi aftur komast hingað inn var að við hjónaleysin erum að gæða okkur á pistasíu-hnetum og ég fór að velta því fyrir mér hvort þær opnist svona frá náttúrunnar hendi eða hvort það sé fullt af börnum í þrælkun á Indlandi við það að hálfopna þær.
Hver getur svarað þessu?
July 24th, 2006 at 11:26 pm
hef alltaf haldið (án þess að vita svo sem með vissu) að þær séu léttristaðar eða hitaðar og spretti þá svona upp.
Nema það séu íkornar í vinnu, eins og í Kalla og sælgætisgerðinni…
July 25th, 2006 at 10:16 am
vill innanbúðarmaðurinn útskýra fyrir mér hver fjandinn er að gerast í ÖBÍ?
July 25th, 2006 at 1:38 pm
Pistasíur opnast af sjálfu sér á trénu þegar þær nálgast að verða fullþroska. Ef þær opnast ekki er það venjulega vegna þess að vaxtarskilyrðin hafa ekki verið nógu góð. Mér skilst að ef maður er staddur í pistasíutrjálundi á réttum árstíma megi heyra smelli úr öllum áttum þegar hneturnar opnast ein af annarri.
July 25th, 2006 at 2:40 pm
Takk fyrir þessar upplýsingar Nanna. Ég held þá áfram að gúffa þeim í mig með góðri samvisku.