google
yahoo
bing

Archive for July, 2006

Pómó

Monday, July 31st, 2006

Við Stefán sátum uppi í sófa í Norðurmýrinn í gærkvöldi og horfðum á tónleikana með Sigur Rós í sjónvarpinu. Þegar við skiptum um rás til að horfa á eitthvað annað héldum við samt áfram að hlusta á tónleikana þar sem þeir bárust inn um stofugluggan.

* * *

Styttist í að við förum austur á Neistaflug. Ætli maður verði ekki að sýna smá samstöðu og taka á móti Knútnum þegar hann kemur í mark í Barðsneshlaupinu. Ég efa ekki að hann eigi eftir að standa sig með sóma.

Mótmælum árásunum á Líbanon

Wednesday, July 26th, 2006

Samtök herstöðvaandstæðinga hafa boðað til mótmælastöðu vegna stríðsins í Líbanon við bandaríska sendiráðið á föstudaginn kl. 17:30. Þanngað mæta náttúrulega allir með viti. Nánar má fræðast um þetta hér.

* * *

Við höfðum nýjar íslenskar kartöflur í kvöldmatinn og svo eitthvað gras með svona til málamynda. Ég væri alveg til í að borða kartöflur í alla mata þessa dagana. Mér finnast nýjar kartöflur jafn rosalega góðar og mér finnast gamlar kartöflur rosalega vondar og maður á sko alltaf að segja eins og manni finnst.

Háskalegt heimili

Tuesday, July 25th, 2006

Ég var spurð að því hvað væri að gerast innan ÖBÍ. Því er til að svara að mest lítið er að gerast innan ÖBÍ. Annars vísa ég bara í þessa tilkynningu.
Hó hvað ég er efni í góðan pólitíkus.

* * *

Amman klippti barnið í dag. Ekki það að hún hafiverið neitt sérlega hárprúð. Toppur og lokkar í hnakkanum voru hinsvegar úr sér vaxin. Og nú er barnið myndarlegt sem aldrei fyrr.

Annars er ljóst að við verðum að fara að herða stelpuna. Við fórum í gær og heimsóttum Freyju og fjölsk. Freyja vildi tuskast en Ólína kunni það ekki og varð bara hálf skellkuð. Ólínu varð líka heldur brugðið þegar hún sá kött spássera yfir stofugólfið á Guðrúnargötunni. Hingað til hefur hún einungis séð ketti utandyra og helst úr öruggri fjarlægð. Ég held að henni hafi fundist þetta mjög undarlegt ef ekki háskalegt heimili.

It´s alive

Monday, July 24th, 2006

Það tók talsverðan tíma að komast hingað inn enda þónokkuð langt um liðið síðan ég skrifaði eitthvað síðast. Ég var náttúrulega löngubúin að gleyma lykilorðinu og þurfti að viðhafa allskyns kúnstir til að verða mér úti um nýtt. Kannski þetta kenni mér að láta ekki svona langt líða milli skrifa aftur…eða kannski ekki.

Ástæða þess að ég vildi aftur komast hingað inn var að við hjónaleysin erum að gæða okkur á pistasíu-hnetum og ég fór að velta því fyrir mér hvort þær opnist svona frá náttúrunnar hendi eða hvort það sé fullt af börnum í þrælkun á Indlandi við það að hálfopna þær.

Hver getur svarað þessu?