Yndislegt líf
Þar sem ég hef eignast tvær nýjar flíkur, aðra með doppum en hina með blómum má sumarið alveg fara að láta sjá sig. Það er allavega tryggt að ég verð gella!
Stefán á líka bunka af nýjum fötum.
Ólína er krambúleruð sem aldrei fyrr eftir kollhnís í tröppunum niður í þvottahús.
Ójá. Svona er lífið á Mánagötunni þessa dagana.