Germaine Greer
Ég missti af fyrsta Project Runway þættinum í nýju syrpunni. Sá hinsvegar þáttinn í kvöld. Í fljótu bragði sýnist mér enginn keppenda vekja sérstakan áhuga minn.
* * *
Sá einnig Germaine Greer í kastljósinu. Hún er töffari. Mér fannst sérlega gaman þegar hún fór að hnýta í Bridget Jones enda sjaldan leiðst meira í bíói en þegar ég lét til leiðast að fara að sjá þá örmu mynd. Eyrún var hinsvegar ekki alveg að ná upp í hana.
Fyrir nokkrum árum gaf Stefán mér bókina The Whole Woman eftir Greer í konudagsgjöf. Ég hef aldrei haft mig í að lesa hana. Bókinni hefur hinsvegar hér með verið pakkað niður og ferð með í sumarfríið sem hefst á föstudag.
* * *
Hvar get ég keypt Tigi Bed Head vörur?
May 31st, 2006 at 11:53 pm
Mér finnst bækurnar um Bridget algjör snilld. Bíómyndirnar eru allt önnur saga.
June 1st, 2006 at 1:08 am
Það er eitthvað til af þessum vörum hér úti…. Þannig að ef að þú finnur þetta ekki á Íslandi láttu mig þá vita.
June 1st, 2006 at 8:30 am
held þú fáir tigi vörurnar hjá hágreiðslustofunni toni&guy á laugaveginum
June 1st, 2006 at 9:25 am
Takk Inga. Ég prufa það.
June 4th, 2006 at 9:32 pm
já og á hárgreiðslustofunni hjá Siggu Þrúðu í Steininum á Norðfirði! Magnað úrval þar!