Kratarnir leynast víða
Það er ekki að spyrja að því. Við komum að sjálfsögðu södd og sæl heim úr Friðarhúsi. Ja, nema kannski Ólína sem var svo upptekin af Freyju nýju vinkonu sinni að hún hafði ekki tíma til að borða neitt að ráði. Það er greinilegt að við verðum að fara að umgangast Auði, Frey og Freyju svo Ólína sjóist í að leika við börn á svipuðum aldri.
* * *
Þar sem ég fletti Fréttablaðinu í gærkvöldi sá ég að Grímur Atlason, fyrrum félagi minn úr stjórn VG í Reykjavík, var í auglýsingu þar sem hann sagðist styðja Dag B. Eggertsson.
Grímur hafði seint á síðasta ári falast eftir sæti á lista VG en tapaði baráttunni um þriðja sætið fyrir Þorleifi Gunnlaugssyni. Grímur hafnaði hinsvegar í fimmta sæti en þáði það hinsvegar ekki. Ekki hafði ég þó ímyndað mér að slakt gengi í prófkjörinu myndi gera hann að krata - en svona er lífið.