Afspyrnu lélegur djammari
Ég stóð mig vægast sagt illa á djamminu í gær. Mætti á Hallveigarstaði á dagskrána Konur með náttúru. Sumt þar var skemmtilegt annað drepleiðinlegt. Reyndar svo leiðinlegt að það setti mig alveg út af laginu.
Kíkti svo aðeins í Stúdentakjallaran með Vigdísi en við komum það seint að þar var fullt út úr dyrum. Ólund mín gerði það að verkum að mig langaði ekki að vera innan um svona margt fólk svo ég lokkaði Vigdísi til að koma bara heim að horfa á videó með gylliboðum um snakk og nammi. Ef marka má Auði Lilju misstum við því af afbragðs tónleikum.
Vídeóglápið gekk heldur ekki vel. Við tókum Voksne mennesker á dvd en þegar farið var að síga á síðari hluta myndarinnar fór hún að stoppa og hoppa fram og til baka í tíma og á endanum gáfumst við bara upp og ákváðum að það væri hvort eð er kominn svefntími.
Ég skoraði semsagt engin rokkstig í gær og ljóst er að ég verð að taka mig verulega á ef ég ætla að vera stuðpinni í sumar.
May 24th, 2006 at 12:54 pm
Hæ, fer á morgun þannig að við verðum að geyma dinnerinn fram á haust eða kannski ráðumst við inn á Sigga einhvern tímann þegar þið komið austur.
May 24th, 2006 at 4:22 pm
Steinunn! Það að “múta” fólki með nammi&dvd til að fara heim af djamminu eru alveg -100 “rokkstig”!
Ég verð hins vegar að viðurkenna að ég hef verið lítið skárri upp á síðkastið. Það verður bara (vonandi?) tekið “djamm-sumar” í staðinn