Góð hugmynd skotin niður
Fjölskyldan á Mánagötunni var árrisul í morgun. Ólína á það nefnilega til að rífa sig upp við vekjaraklukku föður síns. Ég stakk upp á því við Stefán að hann léti græða vekjaraklukku í eyrað á sér svo við mæðgur gætum sofið þegar hann færi að skaffa salt í grautinn. Það verður að viðurkennast að hann tók því fremur fálega.
Þegar Ólína áttaði sig á því að faðir hennar væri að búa sig til brottfarar var hún fljót að tína sama ullarsokk og flísbuxur og drösla því að útidyrunum. Greinilegt hverjum henni hugnaðist best að eyða deginum með.
Annars er ég að spá í að vera svo framúrstefnuleg í kvöld að skella mér á tónleika. Ég hef ekkert komið að undirbúningi þessara kosninga og þarf því nauðsynlega að koma mér í smá stemmingu. Auk þess er ég búin að vera liðónýt við djamm síðasta árið svo það er eins gott að koma sér í smá æfingu fyrir sumarið.
May 19th, 2006 at 4:24 pm
Duglegar mæðgur og til hamingju með gönguhæfileikana báðar !