Ólínublogg

Ólína er farin að labba og er ekkert smá stolt af sjálfri sér. Síðustu daga hefur hún mikið verið að æfa sig en í dag fór hún að leggja í alvöru vegalengdir. Gat t.d. labbað frá hurðinni inn í íbúðina og fram í stofu. Hún ræður hinsvegar ekki enn við þröskuldinn inn í svefnherbergi. Það styttist semsagt verulega í það að hún verði flinkari að labba en ég.

Svo skilur hún líka orðið “kyssa” og gerir smelli þegar maður biður hana um að kyssa sig. Þegar að sjálfum kossinum kemur opnar hún hinsvegar munninn og sleikir mann. -Það hefur hún líklega frá móðurbróður sínum.

Jamm og já. Það er semsagt mikið stuð á Mánagötunni um þessar mundir.

4 Responses to “Ólínublogg”

  1. Jóhanna Says:

    Frábært:) Nú kemst hún sem sagt um allt til að tæta. Svo fer hún að klifra líka og þá minnkar ennþá stjórnin sem maður hefur á hlutunum. Vildi bara að ég gæti komið og séð hana leika listir sínar. Varðandi kossana þá gerði Helgi Gnýr þetta líka en hann hætti þessu þó eftir e-n tíma. Hins vegar var bróðir þinn orðin frekar gamall þegar hann var ennþá að ráðast á fólk og sleikja það. Annars finnst mér bara fólk vera heppið að fá smá Ólínu-slef á sig:)

  2. Ingibjörg amma Ólínu Says:

    Óskaðu Ólínu til hamingju frá mér! Hún hefur verið mjög dugleg að undanförnu við að gera verklegar tilraunir með lögmál Newtons. Hún fann út að hún gat auðveldlega staðið kyrr án þess að detta og svo reyndi hún líka að sleppa sér eftir að hafa tekið tillhlaup. Upprennandi tilraunaeðlisfræðingur!

  3. Vigdís Says:

    Var Guðmundur mikið í því að sleikja fólk? Hmm undarlegur drengur

  4. Hrönn Says:

    Til hamingju Ólína. Ég kem á sunnudag - þriðjudag eftir rúma viku að taka stöðuna.