Billa amma hefði orðið níræð í dag
Það fór illa á laugardaginn. En ég get þó altént huggað mig við að hafa verið sjálfri mér samkvæm, komið hreint fram og borið höfuðið hátt. Það sama verður því miður ekki sagt um alla sem á fundinum voru. Annars má lesa um þetta allt í ítarlegri umfjöllun Stefáns, svo ég nenni ekki að vera að eyða of mörgum orðum á þetta allt saman eða vera að svekkja mig.
Annars er dagurinn í dag merkilegur fyrir þær sakir að langamma mín, Billa á strönd hefði orðið níræð í dag. Billa amma kenndi mér margt sem ég mun búa að alla ævi og svo var hún líka einstaklega skemmtileg kona, sem hafði mikla þolinmæði gagnvart því að ég og vinkonur mínar ærsluðust á ganginum hjá henni í Breiðabliki. Mér finnst gaman að það sé sól á afmælinu hennar.
May 16th, 2006 at 5:27 pm
las umsögn hins bitra maka þíns og er sammála að þetta var lélegt af G. En annars þekki ég ekkert til málsins og ætla því að reyna að dæma engan þar sem ég var ekki á staðnum. Hef trú á að þú brillerir bara á öðrum sviðum þangað til þinn tími í MS félaginu kemur… mundu bara ÞINN TÍMI MUN KOMA…
Til hamingju Billa amma!
May 19th, 2006 at 1:48 am
Til hamingju með ammælið Bill’amma!