Germaine Greer
Wednesday, May 31st, 2006Ég missti af fyrsta Project Runway þættinum í nýju syrpunni. Sá hinsvegar þáttinn í kvöld. Í fljótu bragði sýnist mér enginn keppenda vekja sérstakan áhuga minn.
* * *
Sá einnig Germaine Greer í kastljósinu. Hún er töffari. Mér fannst sérlega gaman þegar hún fór að hnýta í Bridget Jones enda sjaldan leiðst meira í bíói en þegar ég lét til leiðast að fara að sjá þá örmu mynd. Eyrún var hinsvegar ekki alveg að ná upp í hana.
Fyrir nokkrum árum gaf Stefán mér bókina The Whole Woman eftir Greer í konudagsgjöf. Ég hef aldrei haft mig í að lesa hana. Bókinni hefur hinsvegar hér með verið pakkað niður og ferð með í sumarfríið sem hefst á föstudag.
* * *
Hvar get ég keypt Tigi Bed Head vörur?