Dularfulla Fréttablaðsgátan

Ekkert Fréttablað í dag. Reyndar sagði hann Jóhannes, sem kom til að gera fínt hjá mér í morgun, mér frá því að systir hans sem býr hér í Norðurmýrinni fær Fréttablaðið bara annanhvern dag. Það er vegna þess að blaðberinn tók það upp hjá sjálfum sér að bera einungis út öðrumegin götunnar einn daginn en hinumeginn næsta dag.

Augljóslega er mikil vinnuhagræðing fólgin í þessu. Það er því alls ekki útilokað að minn blaðberi hafi komið sér upp einhverri svona vinnureglu líka. Ég ætti því kannski bara að banka uppá hjá Árna bókbindara og gera við hann einhverskonar blaðaskipta samning. Og þó. Fréttablaðið er nú varla þess virði.

2 Responses to “Dularfulla Fréttablaðsgátan”

  1. Hrönn Says:

    Það er amk um að gera að refsa blaðburðabörnunum ekki fyrir þessa skipulagsgáfu ;-)

  2. steinunn Says:

    Það er sko fullorðið fólk sem er svona ósvífið. Held að börnin séu almennt samviskusöm.