Afmæli og fleira
Það var nóg að gera á Mánagötunni í gær enda heimasætan að halda uppá eins árs afmælið sitt. Hún fékk margar góðar gjafir, leikföng, bækur og föt. Stefán þarf sem sagt ekki að lesa hann Andra litla aftur í bráð. Pabbinn gæti þó átt eftir að vera fyrir ákveðnum vonbrigðum þegar hann fattar að aðrar harðspjaldabækur eru síst með áhugaverðara flotti. Mér finnst Andri satt að segja bara ágætur.
Fjölskyldan skellti sér svo út í Friðarhús eftir kvöldmatinn og límdi á nokkra Dagfara. Það var nú bara hressandi og skemmtilegt. Ólína fékk þó ekki að líma alveg jafnmikið og hún hefði sjálf kosið. Kannski á 2 ára afmælinu.
Afmælisbarnið bauð límingarfólkinu upp á afanginn af bleiku afmæliskökunni sem Lonni var svo yndisleg að baka og mæltist hún afar vel fyrir.