12 mánaða skoðun
Ég settist út í blíðuna áðan með Draumalandið hans Andra Snæs. Ég er ekki frá því að ég hafi jafnvel orðið mér úti um nokkrar freknur með uppátækinu. Hlakka til að klára bókina. Ef sama veðurblíðan verður aftur á morgun er aldrei að vita nema ég setjist bara aftur út.
Annars var Ólína í 12 mánaða skoðun núna áðan. Hún er 10.260 kg og 76 cm. Ég á samt svolítið bágt með að trúa að hún hafi ekki lengst nema um 3 cm síðan síðast. Nema þá kannski að obbinn af fötunum hennar hafi hlaupið á þessu tímabili.
Daman var nú ekki alveg sátt við barnalækninn. Finnst greinilega lítið réttlæti í því að þessi karl troði kaldri hlusturnarpípu inn á bringuna, bori einhverju tæki inn í eyrun og stingi svo að lokum sprautu í rassinn á henni. Og geri svo ráð fyrir að maður þakki fyrir komuna og kveðji kurteisislega.
Ég veit ekki hvort það er sprautan eða bara eitthvað tilfallandi, en Ólína er allavega með pirraðasta móti núna seinnipartinn.
April 18th, 2006 at 5:01 pm
Jeminn hvað tíminn líður hratt. Stúlkan að verða eins árs.. alveg magnað.
Kv. að Austan
April 18th, 2006 at 11:39 pm
örugglega sprautan. Eiga þetta alveg til, þessi skinn