Í framboði
Á miðvikudaginn var ákveðið að flýta aðalfundi MS-félagsins. Aðalfundurinn er vanalega haldinn að hausti en í ár verður hann 13.maí. Stjórn ákvað að flýta fundinum til að höggvað á ákveðna hnúta sem verið hafa í starfinu um allnokkurt skeið.
Í framhaldi af þessari ákvörðun hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns í félaginu. Allt bendir til að sitjandi formaður geri slíkt hið sama. Það stefnir því í kosningar á fundinum. Líklega verður einnig tekist á um önnur embætti í stjórninni.
Því miður hafa deilur og innbyrðis átök einkennt MS-félagið um margra ára skeið. Þess vegna hlýtur þessi staða sem upp er komin að valda einhverjum vonbrigðum. Hinsvegar held ég að ef allir aðilar koma heiðarlega fram í kosningabaráttunni ætti sjálft félagið ekki að skaðast.
Ég er sem sagt komin í bullandi kosningabaráttu. Næstu vikur ættu því að verða stanslaust stuð.
April 14th, 2006 at 12:24 am
jú gó, görl!
April 15th, 2006 at 12:47 pm
Þannig að þú neyðist í þetta sinn til að kjósa “X-S” Steinunn mín?
April 15th, 2006 at 1:57 pm
Við þurfum svo sannarlega á ungu og fersku blóði að halda og þú ert svarið við þessu öllu saman;o)
April 15th, 2006 at 2:57 pm
Áfram Steinka…Æm rútin´for jú!
April 19th, 2006 at 12:10 am
Neisko, þú ert að fara fram á móti frænku minni.
Ég hugsa að ég púlli framsóknarmanninn á þetta, sitji bara á kantinum og velji hvern ég styð þegar það er orðið nokkuð augljóst hver vinnur
.
April 19th, 2006 at 10:44 am
Hún er líka frænka mín ;0)
Ætli við séum kannski skyld Hugi?
April 20th, 2006 at 9:30 pm
Hmm, hugsanlega. Pabbi Sigurbjargar er bróðir ömmu.
April 21st, 2006 at 2:28 pm
Gangi þér vel í kosningabaráttunni þú verður góður formaður og kemur sáttum á innan þessara blessuðu samtaka