Algjör pæja
Við Ólína fórum í Kringluna í dag. Þetta var jómfrúarferð Ólínu þangað en hún fór reyndar í sérstökum erindagjörðum. Að kaupa sér skó. Jamm stelpan er semsagt búin að eignast skó. Fallega rauða skó. Og hún er svo stolt af þeim.
Bryndís kom í mat í kvöld og borðaði með okkur indælis lax úr laxeldinu í Mjóafirði. Eða jafn mikinn indælis lax og lax getur mögulega orðið.
Svo kom Páll. Hann fékk bara Lu kex.