Archive for March, 2006

Þrýstingur

Saturday, March 4th, 2006

Ég verð fyrir þrýstingi úr öllum áttum þar sem fólk er að falast eftir ýmsum óspennandi upplýsingum um mig. Nú læt ég sem sagt undan…

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

Í frystihúsi
Gangastúlka á spítala
Gjaldkeri í banka
Skrifstofustörf hjá TR

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

Hef ekki horft á bíomynd aftur og aftur í þónokkur ár en ætli það væru ekki helst

Cry baby
og
Before sunrise

sem ég hef horft á oftar en einu sinni síðustu 10 árin.

Og hér áðurfyr hefðu

Bill & Ted’s exelent anventures
og
Young guns II

farið á listann en ég bara veit ekki hvort það myndi virka numa…

4 staðir sem ég hef búið á:

Neskaupstaður
Kópavogur
Reykjavík
Árósar

Nenni ekki að tiltaka nein götunöfn eða húsnúmer – enda gæti það orðið langt og flókið mál

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

The Office
Extras
CSI
Friends

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Machu Piccu
Bjarg í Miðfirði
Asunción
Istanbul

4 heimasíður sem ég skoða daglega:

Eftir talsverða yfirlegu hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég skoða eiginlega bara blogg og tel það sjálfri mér alls ekki til framdráttar að útlista það neitt frekar.

4 máltíðir sem ég held upp á:

Kjötsúpa
Sniglar með hvítlauk og hvítvíni
Ýsa í hvítlaukssósu frá fiskbúðinni Vegamótum
Ofur-pastað okkar Stefáns

4 bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:

Bækurnar um Patrick Pennington píanóleikara.
Salka Valka (Gæti samt ekki sagt frá söguþræðinum til að bjarga lífi mínu).
Litli Prinsinn
Sálmurinn um blómið

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

Orkneyjar
Hjaltlandseyjar
Prag
Einhversstaðar þar sem er vor eða sumar

Ég veit að Þórey Leifs les þessa síðu stundum og vil því beita hana þrýstingi og mana hana til að segja svolítið frá sér hér á kommentakerfinu. Svo þarf Siggi Óla nú að fara að taka sig á í blogginu og hér með veiti ég honum kærkomið tækifæri til þess…

jamm

HÖH

Friday, March 3rd, 2006

Skemmtilegt viðtal við Hilmar Örn Hilmarsson í Blaðinu í gær. Og enn skemmtillegra að sjá að Ólína á sama afmælisdag og hann.

Annars les ég sjaldan Blaðið. Það er helst að það gerist þegar Fréttablaðs blaðburðarbarnið svíkur okkur. Ekki það að ég hafi neitt á móti Blaðinu þannigséð. Fréttablaðið er bara komið inn í rútínuna og svo finnst mér svolítið óþægilegt hvernig auglýsingunum er troðið ofaní fréttirnar hjá Blaðinu.

Get andað

Thursday, March 2nd, 2006

Það virðist ekki ætla að lokast öndunarvegurinn í kvöld. Annars var BZ tilbúin í barkaskurð svo þetta ver allt undir kontról.

Lýsi og aukaverkanir

Thursday, March 2nd, 2006

Ef þið hélduð að ég ætlaði að fjalla um aukaverkanir af lýsi þá náði ég sko aldeilis að gabba ykkur…

* * *

Ég gaf Ólínu lýsi í fyrsta skipti í morgun. Það er nokkuð síðan lýsisflaskan var keypt en ég hef bara ekki haft mig í það að prufa að gefa henni. Þetta var nú ekki mikið mál. Ólína slafraði einni teskeið í sig án þess að svo mikið sem gretta sig og át svo risaskammt af hafragraut á eftir. Ef hún heldur áfram á sömu braut má Stjáni Blái sko fara að vara sig.

Reyndar er þetta Krakkalýsi óskaplega bragðlítið svo það er kannski ekki hægt að telja þann sem kemur því niður átakalaust neina sérstaka hetju. Nema kannski ef Bryndísi tækist það.

* * *

Fyrir um þremur vikum byrjaði ég á MS-lyfi sem heitir Copaxone. Allt gekk lómandi vel þar til í gær Nokkrum sekúndum eftir að ég var búin að sprauta mig fékk ég óþægindi óþægindi í magann, svo í hálsinn og loks fór ég að ofanda og hélt á tímabili að það myndi líða yfir mig.

Sem betur fer var hjúkka á dagdeild taugadeildarinnar búin að vara mig við því að þetta gæti gerst svo ég var fljót að átta mig á hvað væri í gangi. Ég gerði því eins og mér hafi verið ráðlagt og náði mér í poka til að anda í og hringdi svo í Stefán sem var í Friðarhúsi og bað hann vinsamlegast um að koma heim strax, svona ef ég myndi missa meðvitund.

Ég var eiginlega búin að jafna mig þegar hann kom heim en mikið djöfulli var þetta óskemmtileg lífsreynsla og mikið var ég fegin að Ólína var steinsofandi meðan á þessu stóð.

Ég hringdi svo áðan upp á taugadeild til að tilkynna um þetta en öll svona atvik eru víst skráð. Hjúkkan þar ætlar að ræða við lækninn minn og láta hana taka ákvörðun um hvað gera eigi í framhaldinu.

Ég vona bara ég þurfi ekki að hætta á lyfinu þar sem flestir sem ég þekki og eru á þessu segja að það dragi úr MS-köstum og einkennum hjá þeim. En það er þó alveg örugt að ég sprauta mig ekki aftur með þessu í bráð þegar við Ólína erum bara tvær heima heima.