Missti ég úr viku?

Ég settist fyrir framansjónvarpið til að horfa á framhaldið á Dalziel & Pascoe en ég taldi mig einmitt hafa horft á þá fyrir viku síðan. Byrjar þá ekki bara einhver allt önnur saga með þeim félögum. Hvað í ósköpunum ætli ég hafi verið að gera síðasta þriðjudagskvöld? Eða ég geri ráð fyrir að ég hafi frekar týnt einni viku en að sjónvarpið sé að klúðra.

Nú á ég örugglega eftir að velta því endalaust fyrir mér hver drap litlu stelpurnar og hvers vegna.

One Response to “Missti ég úr viku?”

  1. Á Says:

    Ég ætlaði að segja þér það en skyndilega er því alveg stolið úr mér, man þó að það var ekki Benny Lightfoot.