Fíkill?

Á morgun byrja ég á sterakúr. Í þetta sinn mun ég fá þá á dagdeild taugadeildar Landspítalans. Það þýðir að ég verð ekki lögð inn heldur droppa ég bara rétt við meðan það er verið að dæla sterunum í handlegginn á mér, borga dagdeildargjald og fer svo ofvirk heim í faðm fjölskyldunnar. Ég veit ekki alveg hvernig mér líst á þetta fyrirkomulag.

Gamanið byrjar á morgun. Heldur svo áfram á föstudaginn. Um helgina fæ ég frí en á að mæta aftur mánudag, þriðjudag og miðvikudag.

Í gær voru gerðar ýmsar forprófanir á mér til að athuga hvort ég væri nógu frísk til að mega fá sterana. Eitt af því sem var gert var að taka röntgenmynd af lungunum. Niðurstaðan var sú að ég væri með einstaklega falleg lungu.

Í dag var ég svo skoðuð enn meira. Ég er búin að rekja sjúrkasögu mína fimm sinnum, fyrir fimm mismunadi aðilum á tveimur dögum. Hvað ætli verði um öll blöðin sem heilbrigðisstarfsfólk skrifar minnispunktana sína á? Þau virðast allavega alveg ekki geymd til þess að sjúklingar þurfi ekki að vera að endurtaka sjálfa sig í sífellu.

Annars fékk ég eina nýstárlega spurningu í dag. Læknarnir spurðu mig hvort ég væri fíkill. Skildu þeir hanka marga á þessari spurningu?

2 Responses to “Fíkill?”

  1. Ingibjörg Says:

    Ég vona að þú hafir ekki farið að viðurkenna fyrir læknunum að þú sért sælgætisfíkill (!) Miðað við nýjustu upplýsingar næingar”therapista” er sykur víst eitt hættulegasta fíkniefnið.

  2. Þórey Says:

    Já þetta er alveg merkilegt með þessar endurtekningar á spítölum. Margoft að þylja upp sama efnið, sem er nú ekkert sérstaklega skemmtilegt svo sem að segja frá. Ótrúlegt að svona upplýsingum sé ekki drullað inn í tölvuna og þeir sem þurfa á þessu að halda nái í þetta þangað… einhver ómissandi veiki í gangi þarna hjá þessu fólki…. einhverjum gæti hafa yfirsést eitthvað ….