Archive for March, 2006

Ekkert jukk takk!

Friday, March 31st, 2006

Ólína lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Í gær harðneitaði hún t.d. að borða eitthvað Gerber krukkujukk. Hún borðaði hinsvegar með bestu lyst túnfisk, ólífur og þistilhjörtu ofanaf pítsu foreldra sinna.

* * *

Von er á pabba, Helgu og Magneu í bæinn einhverntíma í kvöld. Þau lögðu af stað keyrandi suðurfyrir í morgun en sækist ferðin fremur hægt. Pabbi er nú þekktur fyrir margt annað en hraðakstur og svo sprengdu þau dekk einhversstaðar í nágrennni við Höfn og einhver tími fór í vafstur í sambandi við það.

Dagskráin hjá þeim þessa viku sem þau stoppa í borginni er einhvern svona:

Leika við Ólínu
Leika við Ólínu
Fara í fermingarveislu
Leika aðeins meira við Ólínu

Margt er líkt með skyldum

Wednesday, March 29th, 2006

Ólína hefur þróað með sér ansi sérstæðan dans, sem hún dansar iðulega sitjandi á rassinum. Taktar hennar eru ekki alls ósvipaðir danstöktum föður hennar.

Var sofandi

Tuesday, March 28th, 2006

Ég hef komist að því að ég var líklega bara steinsofandi síðasta þriðjudagskvöld meðan verið var að upplýsa hver væri morðingi stúlknanna. Eða kannski að lesa Zorró eftir Isabel Allende. Sem mér reyndar fannst stórskemmtileg bók.

Missti ég úr viku?

Tuesday, March 28th, 2006

Ég settist fyrir framansjónvarpið til að horfa á framhaldið á Dalziel & Pascoe en ég taldi mig einmitt hafa horft á þá fyrir viku síðan. Byrjar þá ekki bara einhver allt önnur saga með þeim félögum. Hvað í ósköpunum ætli ég hafi verið að gera síðasta þriðjudagskvöld? Eða ég geri ráð fyrir að ég hafi frekar týnt einni viku en að sjónvarpið sé að klúðra.

Nú á ég örugglega eftir að velta því endalaust fyrir mér hver drap litlu stelpurnar og hvers vegna.

Tímarnir breytast

Monday, March 27th, 2006

Einu sinni fannst mér balsamic olía vond. Nú get ég hinsvegar ekki hugsað mér máltíð án hennar.

Letihelgi

Sunday, March 26th, 2006

Gærdagurinn var unaðlegur. Við lágum heima í endalausri leti. Svona að því fráskyldu að ég þurfti að fara á einn fund um morguninn og Stefán að skreppa tvisvar í vinnuna. En hva…Hef ekki upplifað jafn letilegan dag í háa herrans tíð. Svona eru sterarnir greinilega að skila sér. Ég hef orku til að liggja meðvitað í leti en ligg ekki bara eins og þreytt slitti.

Elduðum okkur svo dýrindis lambafillet í kvöldmatinn. Þurfti meira að segja að krydda það sjálf og allt. En það heppnaðist ljómandi vel.

Í dag er annar letidagur heima því Ólína er að ná sér eftir smá veikindi. Hún er orðin hitalaus en hóstar svolítið og fær ekki að fara út.

* * *

Öðlingurinn maðurinn minn gaf mér ilmvatn þegar hann kom heim frá útlöndum.

* * *
Óheppni Huga á sér engin takmörk.

Hugað að fjárfestingu

Tuesday, March 14th, 2006

Sterarnir ganga vel. Fékk fjórða skammtinn í dag og fæ þann síðasta á morgun. Vona bara að nálin lafi svo það þurfi ekki að stinga mig einu sinni enn.
Er mjög bjartsýn á að nú sé þetta allt að koma og að ég verði eiturhress í allt vor og sumar og gott ef ekki bara næsta vetur líka.

Þarf svo bara að skreppa fyrir helgi í Rúmfatalagerinn og kaupa mér svona nælonstól með baki sem hægt er að brjóta saman og sagðir eru svo sniðugir í útilegur. Sé fyrir mér að þetta gæti verið góður aukabúnaður í Íraksmótmælin á laugardaginn (sem allir ætla náttúrulega að fjölmenna á). Þá get ég bara mótmælt sitjandi eins og fín kona og þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ofreyna mig.

Væl og skæl

Thursday, March 9th, 2006

Þetta var nú bara alls ekki svo slæmt á göngudeildinni í dag. Svona fyrir utan það hvað það gekk illa að koma upp nál. Það hafðist þó í fjórðu stungu…sem því miður er ekkert óvenjulegt. Og það var misskilningur að ég þyrfti að borga. Svo ég er bara að græða.

Er bara með rólegra móti í kvöld. Vona bara að það haldist. Reyndar var mér ráðlagt að borða ekkert sælgæti meðan ég væri að fá sterana. Svo auðvitað er ég búin að hugsa um nammi meira og minna í allan dag. Svo tengdamóðir mín hefur kannski á réttu að standa með sykurfíknina. Er ekki fallin enn og þó veit ég að það er til nammi í íbúðinni.

Klukkan átta í fyrramálið er svo segulómun. Get ekki sagt að ég hlakki til. Er heldur ekki bjartsýn á að myndirnar sem koma út
úr því verði jafn fínar og lungnamyndirnar.

Jamm. Líf mitt er ekki sérlega spennandi þessa dagana.

Fíkill?

Wednesday, March 8th, 2006

Á morgun byrja ég á sterakúr. Í þetta sinn mun ég fá þá á dagdeild taugadeildar Landspítalans. Það þýðir að ég verð ekki lögð inn heldur droppa ég bara rétt við meðan það er verið að dæla sterunum í handlegginn á mér, borga dagdeildargjald og fer svo ofvirk heim í faðm fjölskyldunnar. Ég veit ekki alveg hvernig mér líst á þetta fyrirkomulag.

Gamanið byrjar á morgun. Heldur svo áfram á föstudaginn. Um helgina fæ ég frí en á að mæta aftur mánudag, þriðjudag og miðvikudag.

Í gær voru gerðar ýmsar forprófanir á mér til að athuga hvort ég væri nógu frísk til að mega fá sterana. Eitt af því sem var gert var að taka röntgenmynd af lungunum. Niðurstaðan var sú að ég væri með einstaklega falleg lungu.

Í dag var ég svo skoðuð enn meira. Ég er búin að rekja sjúrkasögu mína fimm sinnum, fyrir fimm mismunadi aðilum á tveimur dögum. Hvað ætli verði um öll blöðin sem heilbrigðisstarfsfólk skrifar minnispunktana sína á? Þau virðast allavega alveg ekki geymd til þess að sjúklingar þurfi ekki að vera að endurtaka sjálfa sig í sífellu.

Annars fékk ég eina nýstárlega spurningu í dag. Læknarnir spurðu mig hvort ég væri fíkill. Skildu þeir hanka marga á þessari spurningu?

Orðlaus

Monday, March 6th, 2006

Í gær fletti ég tímaritinu Orðlaus sem einhverra hluta vegna berst alltaf örðu hvoru inn á heimili tengdaforeldra minna. Ég geri fastlega ráð fyrir að blaðinu sé ætlað að höfða til Þóru mágkonu minnar frekar en tengdapabba.

Í blaðinu var grein þar sem hægt var að komast að því hversu venjuleg stelpa eða ung kona maður væri. Það er skemmst frá því að segja að samkvæmt þessu er harla fátt venjulegt við mig…