Loksins heyrist hljóð úr horni
Ég sem ætlaði að fara að vera svo dugleg að blogga…
Það hlýtur að vera barnauppeldið sem er að taka allan tíma minn enda vita það allir sem hitt hafa Ólínu að þar er sérdeilis vel upp alinn einstaklingur á ferðinni.
Skruppum á bókamarkaðinn í Perlunni í dag. Keyptum ekki mikið en Ólína er allavega tveimur bókum ríkari. Hittum Bjössa næstumþví bróður minn og Jón Knút. Véluðum Knútinn til að fá sér kaffibolla með okkur og svo vélagði hann okkur til að skutla sig til Huga Þórðar. Þann kappa gæti nú alveg verið áhugavert að hitta við tækifæri.
Þar sem við hjónaleysin erum menningarvitar skelltum við okkur svo í leikhúsið í kvöld að sjá Túskildingsóperuna. Mér fannst gaman. Reyndar finnst mér eiginlega alltaf gaman í leikhúsi. Það tel ég þó að stafi ekki af því að ég láti bjóða mér hvað sem er og sé lítil smekkmanneskja, heldur sé það einmitt vegna þess að ég er smekkmanneskja sem er dugleg að greina kjarnan frá hisminu og fer því aðeins af stað fyrir eðal leiksýningar.
February 27th, 2006 at 12:16 am
Æ, ég var að velta fyrir mér að athuga hvort ég fengi miða á þessa sýningu á Túskildingsóperunni - en kom mér svo ekki til þess. Sé eftir því núna, það hefði verið gaman að rekast á ykkur þar.