Archive for February, 2006

Loksins heyrist hljóð úr horni

Saturday, February 25th, 2006

Ég sem ætlaði að fara að vera svo dugleg að blogga…

Það hlýtur að vera barnauppeldið sem er að taka allan tíma minn enda vita það allir sem hitt hafa Ólínu að þar er sérdeilis vel upp alinn einstaklingur á ferðinni.

Skruppum á bókamarkaðinn í Perlunni í dag. Keyptum ekki mikið en Ólína er allavega tveimur bókum ríkari. Hittum Bjössa næstumþví bróður minn og Jón Knút. Véluðum Knútinn til að fá sér kaffibolla með okkur og svo vélagði hann okkur til að skutla sig til Huga Þórðar. Þann kappa gæti nú alveg verið áhugavert að hitta við tækifæri.

Þar sem við hjónaleysin erum menningarvitar skelltum við okkur svo í leikhúsið í kvöld að sjá Túskildingsóperuna. Mér fannst gaman. Reyndar finnst mér eiginlega alltaf gaman í leikhúsi. Það tel ég þó að stafi ekki af því að ég láti bjóða mér hvað sem er og sé lítil smekkmanneskja, heldur sé það einmitt vegna þess að ég er smekkmanneskja sem er dugleg að greina kjarnan frá hisminu og fer því aðeins af stað fyrir eðal leiksýningar.

Komin á koppinn

Monday, February 20th, 2006

Amman í Kópavoginum kom færandi hendi í dag og gaf Ólínu þennan líka fína græna kopp. Ólína mátaði koppinn náttúrulega strax en ekki hefur enn tekist að pissa í hann. Það mál er þó allt í vinnslu.

Annars er ég búin að vera í bana stuði í kvöld. Vona bara að það eigi ekki eftir að koma niður á heilsu morgundagsins þar semflensu djöfullinn er ekkialveg horfinn. Stundum er bara svo gaman að lifa.

Staðan

Monday, February 20th, 2006

Ólína var hitalaus þegar ég mældi hana í morgun. Það mátti nú eiginlega ekki seinna vera þar sem hún fer í 10 mánaða skoðun á morgun og svo eru 12 dagar með hita líka alveg meira en nóg.

Henni tókst þó allavega að verða sér úti um tvær tennur meðan á þessu stóð svo ekki var hitinn nú alveg til einskis.

Ég er sjálf enn með smá vellu en hálsbólgan er sem betur fer horfin.

Horið er í rénun hjá okkur báðum sem er eins gott því allur mjúki pappírinn er búinn.

* * *

Mér finnst nú maðurinn minn svolítið sætur.

Öðruvísi mér áður brá

Sunday, February 19th, 2006

Rólegheita sunnudagur tók við af rólegheita helgi. Jóhanna, Valdimar og Helgi Gnýr komu í heimsókn. Ólínu fannst þau skemmtileg.

Von er á tengdó og ömmu Stefáns í kvöldmat. Tengdó eru að koma úr djammhelgi í sumarbústað og við ætlum að taka það að okkur að næra þau eftir partýstandið.

Sú var tíðin að þessu hefði verið öfugt farið.

H-in þrjú

Friday, February 17th, 2006

Þar sem ég sá að BZ er farin að blogga aftur get ég náttúrulega ekki verið minni kona.

Ég og Ólína erum veikar. Við erum reyndar búnar að vera með hita, hósta og hor lengi og erum meira að segja mikið farnar að skána. Það er samt ljóst að við munum ekki fara út fyrir hússins dyr aðra helgina í röð og ég missi því af Norðfirðingasjóvinu í kvöld. Svolítið svekkt því þar hefði ég örugglega hitt fullt af skemmtilegu fólki.

Plönin fyrir kvöldið eru því bara að elda dýrindispasta og senda svo Stefán í vídeóspólu leiðangur og liggja svo bara uppi í sófa undir sæng. Ef ekki væri fyrir H-in þrjú gæti þetta bara orðið huggulegt kvöld.