Örorka og velferð á Íslandi
Thursday, December 1st, 2005Mætti á morgunverðarfun Öryrkjabandalagsins í morgun, þar sem Stefán Ólafsson prófessor kynnti skýrslu sína Örorka og velferð á Íslandi og í öðrum vestrænum löndum.
Margt mjög áhugavert kom fram í framsögu Stefáns og greinilegt að niðurstöður rannsókna hans eru talsvert aðrar en niðurstöður Tryggva Þórs Herbertssonar.
Samkvæmt Stefáni er t.d. alls ekki eftirsóknarvert að vera öryrki á Íslandi. Sumir myndu nú kannski segja að það þurfi ekki Háskólaprófessor til að benda á það. En kannski eru einhverjir sem taka meira mark á orðum hans en öllum þeim öryrkjum sem sjálfir hafa bent á að ansi margt er við kerfið hér að athuga.
Það er því ljóst hvað verður aðal lesefni mitt næstu dagana. Þeir sem þegar hafa lesið skýrsluna segja hana reyndar mjög skemmtilega aflestrar svo nú er bara að hella sér í lesturinn. Ætli maður verði svo ekki líka að plægja sig í gegnum skýrslu Tryggva svona til samanburðar.